Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála

3.jpg

Á döfinni

23.-24. maí 2012 kl. 9-12. Námskeið: Hvað má betur fara á vef stofnunarinnar. Nánari upplýsingar HÉR

15. maí 2012. Morgunverðarfundur með Félagi forstöðumanna, Grænn ríkisrekstur.  FRESTAÐ TIL HAUSTSINS.

9. maí 2012. kl. 12-13 Opinn fyrirlestur  Hauks Arnþórssonar. "Stjórnmálaþátttaka við eldhúsborðið- fyrirlestur um netlýðræði.    Nánari upplýsingar HÉR

2.-3. maí 2012 kl. 9-12. Námskeið: Hvað má betur fara á vef stofnunarinnar. Nánari upplýsingar HÉR

26. apríl 2012 kl. 12-13. Opinn hádegisfundur. Áhrif tillagna stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá á stjórnsýslu og stjórnskipan. GLÆRUR af fundinum

25. apríl 2012. Morgunverðarfundur með Félagi forstöðumanna og fjármálaráðuneytinu.  Störf og starfsumhverfi forstöðumanna ríkisstofnana.  GLÆRUR

20. apríl- 18. maí Þjálfunarnámskeið  við að leysa úr málum sem varða ráðningu og starfslok opinberra starfsmanna á lagalega réttan hátt. Nánari upplýsingar HÉR. Skráning HÉR.

17. apríl 2012 kl. 14:00-15:30. Málþing Heilsufar, líðan og aðstæður eldri borgara- niðurstöður nýrra rannsókna. Nánari upplýsingar HÉR  Skráning HÉR

13. apríl 2012. Málþing Stjórnarráð 21. aldarinnar með forsætisráðuneytinu. Nánar auglýst síðar.

8. mars 2012 kl. 8.30-12.30. Námskeið: Framkvæmd og túlkun upplýsingalaga nr. 50/1996. Kennari: Kjartan B. Björgvinsson lögfræðingur Skráning HÉR Nánari upplýsingar HÉR

7. mars 2012. Námskeið: Ráðning og starfslok  starfsmanna hjá ríki og sveitarfélögum kl 8:30-17. Kennari: Kjartan B. Björgvinsson lögfræðingur Skráning HÉR Nánari upplýsingar HÉR

29. febrúar 2012 kl. 12:15-13:15 í lögbergi st. 103.  Opinn fyrirlestur: Að skapa samhljóm: Geta stjórnmálaleiðtogar mótað siðferðisgildi fólks. Fyrirlesari Dr. Jaime Napier, kennari við sálfræðideild Yale University. Auglýsing

22. og 23. febrúar 2012  kl. 13-17. Námskeið: Lagarammi og stjórnkerfi íslenskrar heilbrigðisþjónustu. Kennari Guðríður Þorsteinsdóttir lögfræðingur í velferðarráðuneytinu. Skráning.   Frekari upplýsingar

15. febrúar 2012. Námskeið: Saga, stofnanir og ákvarðanataka innan ESB. Kennari Baldur Þórhallsson, prófessor. Upplýsingar  Skráning

25. janúar 2012: Opinn fyrirlestur Robert Wade Oddi stofa 101 kl. 15:30-17:00 Auglýsing  GLÆRUR

25. janúar 2012: Ráðstefna um fjárlagaferlið með Félagi forstöðumanna ríkisstofnana kl. 8:00-12:00 í Grand hótel Reykjavík. GLÆRUR

23. janúar-29. febrúar. 6 vikna námskeið í stjórnsýslurétti. mánudaga og miðvikudaga kl. 14-16. Nánari upplýsingar. Betur auglýst síðar. Skráning HÉR

12. desember: Opinn hádegisfundur: Var Jón forseti með og á móti ESB? Hagnýting á minningu Jóns Sigurðssonar í stjórnmálum. kl. 12-13 í Odda 101 Frekari upplýsingar

22.nóvember: Málþing: Hjúkrunarheimili framtíðarinnar - heimilisfólk, aðbúnaður, þjónusta kl. 13:30-16:00 á Grand Hótel Reykjavík Pdf: Dagskrá  Nánari upplýsingar  GLÆRUR

4. nóvember: Íslensku kosningarannsóknirnar 1983-2009. Opnun gagnagrunns og nýjar rannsóknarniðurstöður.  Dagskrá

3. nóvember.  Ráðstefna um nýsköpun í opinberum rekstri 3. nóvember á Grand hótel Reykjavík frá kl. 8.30. Nýsköpunarverðlaun, opnun vefsíðu og fyrirlesari frá OECD.  Dagskrá hér á pdf formi.

Upptökur og Glærur ráðtstefna, glærurmálstofa1, glærurmálstofa2 

26. október. Opin ráðstefna Aðstæður fatlaðs fólks: Aðbúnaður, þjónusta, viðhorf, líðan, sjálfræði.kl. 13.00-16:45 í Hörpu, Norðurljósasal. GLÆRUR Nánari upplýsingar .

14. október: Opið málþing kl. 13:15-15:00"Þingræði á Íslandi í 100 ár. Uppruni, eðli og inntak þingræðis-framkvæmd þingræði á Íslandi. Stofa 105 Háskólatorgi Nánari upplýsingar    GLÆRUR

13. október: Námskeið, Saga, stofnanir og ákvarðanataka innan ESB kl. 13-17 í Lögbergi st. 101 HÍ. Nánari upplýsingar og skráning HÉR

21. september. Morgunverðarfundur kl. 8-12. Hvað er framundan í opinberum rekstri?-  Staðan, horfurnar, stefnan og áherslurnar Hvaða áhrif hefur efnahagslegur samdráttur haft á íslenskt samfélag?  Glærur

14. september Opinn afmælisfyrirlestur kl. 12:10-13:45.  "Hvernig má stuðla að betri stjórnmálum? "Designing a Better Politics?" Nánari upplýsingar

25.-27.ágúst: Evrópsk ráðstefna stjórnmálafræðinga ECPR.

1. júní: Hvaða áhrif hefur efnahagskreppan haft á félagslegt traust og félagsleg tengsl á Íslandi- Katarzyna Growiec  Nánari upplýsingar

17.-19. maí: Námskeið "Rafræn stjórnsýsla-möguleikar til umbreytinga á starfsemi stofnana." Nánari upplýsingar   Skráning

28.apríl: Morgunverðarfundur kl. 8-10 "Hvernig geta stjórnendur náð betri árangri í innkaupum?  Skráning  GLÆRUR

7. apríl: Opinn fundur með forystumönnum stjórnmálaflokkanna um Icesave kl. 12-13.15  í stofu 105 Háskólatorgi UPPTAKA AF FUNDINUM AF VEF RÚV

5. apríl: Opið málþing "Hvernig ber að standa að ráðningu í æðstu störf innan stjórnsýslunnar? kl. 15-17 stofu 5 Háskólatorgi. Auglýsing ppt  Glærur

31. mars: Opinn fyrirlestur "Icesave -samþykkt eða synjun. Hver er áhættan? Lee Buchheit.  Auglýsing pp

24. mars: Hádegisverðarfundur kl. 12-13 á Háskólatorgi stofu 105 "Í kjölfar hrunsins: Hvernig höldum við yfirsýn í miðri atburðarásinni?"  Auglýsing pdf   GLÆRUR Mark Blyth af fundinum.

23. mars: Morgunverðarfundur kl. 8-10 á Grand hótel Reykjavík"Hvernig er staðið að mati og mælingum á árangri í ríkisrekstri".  Nánari upplýsingar og glærur. 

17. mars: "Stjórnun breytinga- hagnýtt námsskeið" fyrir stjórnendur í opinberum stofnunum fimmtudaginn 17. mars kl. 13-17 í Námu, húsnæði Endurmenntunarstofnunar HÍ. Nánari upplýsingarSkráning

15. mars: "Virkni, afþreying, þátttaka"  Málþing um nýsköpun og rannsóknir um bætt heilbrigði og virkni eldri borgara þriðjudaginn 15. mars kl. 13.30-16 í húsnæði Háskóla Íslands við Stakkahlíð, stofa Skriða.  Glærur   Upptaka fyrri hluti     Upptaka seinni hluti (gæti þurft að bíða í nokkrar mínútur áður en það er hægt að spila)

7. mars: Opinn málfundur "Eru þjónustusamningar ekki að virka'" kl. 12-13.15 í Lögbergi stofu 101.  Upplýsingar

3. mars-8.apríl: Stjórnsýsluréttur fyrir starfsmenn stjórnsýslu ríkisins og stofnana. Einnig opið starfsmönnum sveitarfélaga.  Skráning  Upplýsingar

25. febrúar: Málþing "Daglegt líf, afkoma og aðstæður öryrkja" kl. 13-16 á Grand hótel Reykjavík.  Skráning  Upplýsingar

23. febrúar: Morgunverðarfundur kl. 8-10 á Grand hótel Reykjavík "Breyttar hugmyndir um stöðuveitingar og störf stjórnenda í opinberum rekstri".  Nánari upplýsingar   Skráning  GLÆRUR

31. janúar, 2.og 3. febrúar 2011: Rafræn stjórnsýsla - möguleikar til umbreytinga á starfsemi stofnana. Þriggja daga námskeið kl. 13-17
 Auglýsing      Nánari lýsing    Skráning

27. janúar 2011: Morgunverðarfundur kl. 8-10  "Viðbúnaður, fyrirhyggja, traust.  Hvernig býr stjórnsýslan sig undir óvænt atvik?" og málþings kl. 10.15-12 "Hvernig er staðið að áhættustjórnun, viðbúnaði og forvirku eftirliti hjá stofnunum ríkisins? Sviðsmyndir."   GLÆRUR   Frekari upplýsingar og skráning

16.desember 2010: "Skiptir þátttaka almennings máli fyrir sjálfbærni borgarsamfélaga?" Opinn hádegisfyrirlestur. Fyrirlesari Dr. Emmanuel Brunet-Jailly.  Auglýsing   Upptaka af fundinum

30. nóvember 2010: Morgunverðarfundur kl. 8-10 "Hollusta, traust og starfsandi á tímum breytinga og óvissu- Ráð til stjórnenda og starfsmanna hjá ríki og sveitarfélögum" í samvinnu við FFR. GLÆRUR

15. nóvember 2010 Málþing á Grand hótel kl. 13.30-17:  Nýsköpun í öldrunarþjónustu. „Stuðningur við eldri borgara til sjálfstæðra búsetu“   Nánari upplýsingar  GLÆRUR

11. nóvember 2010 Námskeið í HÍ kl. 8.30-12.30; Upplýsingaréttur almennings. Framkvæmd og túlkun upplýsingalaga nr 50/1996.  Kjartan Bjarni Björgvinsson, lögfræðingur hjá EFTA dómstólnum. Nánar upplýsingar

10. nóvember 2010: Námskeið kl. 10.15-12 á Grand hótel Reykjavík ; Ráðning og starfslok starfsmanna hjá ríkinu. Kjartan Bjarni Björgvinsson, lögfræðingur hjá EFTA dómstólnum. Nánar upplýsingar.

10. nóvember 2010: Morgunverðarfundur kl. 8-10 á Grand hótel Reykjavík "Starfsmannamál ríkisins- er breytinga þörf?" í samvinnu við FFR og Ríkisendurskoðun.     GLÆRUR

13. október 2010:  Morgunverðarfundur kl. 8-10 "Hvaða lærdóm geta opinberar stofnanir dregið af skýrslum rannsóknarnefndar Alþingis-hverju þarf að breyta í stjórnsýslunni" í samvinnu við Félag forstöðumanna ríkisstofnana (FFR) og Félag stjórnsýslufræðinga.  AUGLÝSING  GLÆRUR

7. október 2010:   Námskeið kl. 13:00-17:00  Samráð á erfiðum tímum. Arndís Jónsdóttir stjórnunarráðgjafi í samvinnu við FFR. Nánar lýsing.  Auglýsing

5. október 2010 Opinn fyrirlestur með Heiner Flassbeck í Hátíðasal Háskóla Íslands  kl. 12-13.30 "The trade that carried Iceland into trouble" í samvinnu við ASÍ. GLÆRUR

22.september 2010: Málefni fatlaðs fólks á tímamótun-horft til framtíðar. Málþing kl. 13.30-17  DAGSKRÁ     Dagskrá (pp) GLÆRUR

21. september 2010Skál fyrir genunum, peningunum og framtíðinni!" Kynjagreining á skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Kl 12.25-13.15. GLÆRUR

15. september 2010: Hvernig á að bregðast við niðurskurði næsta árs. Hver er stefna ríkisins? Hvað eru stofnanir þess að gera? - Morgunverðarfundur kl. 8-10 Glærur komnar á vefinn.

15. september 2010: Árangursríkar aðferðir í sparnaði í opinberum rekstri. "Margt smátt gerir eitt stórt"- Hvað getum við lært hvert af öðru? Málþing kl. 10.15-12- glærur komnar á vefinn.

16. júní 2010: Nauðsynlegar umbætur í fjármálum hins opinbera Morgunverðarfundur á vegum SA k. 8.30-10

20. maí 2010: UT dagurinn, Fyrir hádegi: Hvernig má standa að nýsköpun í opinberum rekstri og hverju getur hún skilað? GLÆRUR OG UPPTÖKUR

20. maí 2010:UT dagurinn; Eftir hádegi: Horft til framtíðar- Ráðstefna UT dagsins GLÆRUR

25.-30.apríl 2010: Uppgjör, ábyrgð og endurmat:Lærdómar af skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. GLÆRUR OG UPPTÖKUR 

21. apríl 2010: Málþing um konur, kosningar og stjórnmál GLÆRUR

13. apríl 2010: Námskeið um ráðningu og starfslok hjá ríkinu.

12.apríl - 18. maí 2010: 6 vikna námskeið í stjórnsýslurétti

25. mars 2010: Morgunverðarfundur Betri stjórn á útgjöldum ríkisins: Hverju þarf að breyta? - GLÆRUR

24. mars 2010 Námskeið um samráð á erfiðum tímum

18.mars 2010: Morgunverðarfundur: Hvernig fáum við það besta út úr heilbrigðisþjónustunni?

24. febrúar 2010: Námskeið um samráð við starfsfólks á erfiðum tímum

25. febrúar 2010: Morgunverðarfundur um Breytingastjórnun-ávinningur og áskoranir í opinberum rekstri.




OPINN FYRIRLESTUR . HAUKS ARNÞÓRSSONAR UM NETLÝÐRÆÐI: STJÓRNMÁLAÞÁTTTAKA VIÐ ELDHÚSBORÐIÐ- ER ÞAÐ FRAMTÍÐIN?  9. MAÍ KL. 12-13 Í LÖGBERGI 101

Fundarstjóri er dr. Þorbjörn Broddason, prófessor.

Meiri upplýsingar

___________________________________________________________________

Ný skýrsla útgefin af fjármálaráðuneytinu og Stofnun stjórnsýslufræða 25. apr. 2012  

NIÐURSTAÐA KÖNNUNAR Á VIÐHORFUM FORSTÖÐUMANNA RÍKISSTOFNANA 2011.

SKÝRSLAN Á PDF FORMI HÉR 

Viðauki 1 spurningalisti HÉR   Viðauki 2 töflur HÉR

Samantekt á niðurstöðum HÉR

_________________________________________________________________

Ólafur Þ. Harðarson, forseti Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands kjörinn í stjórn Evrópusamtaka stjórnmálafræðinga.

Ólafur Þ. Harðarson, forseti Félagsvísindasviðs, hefur verið kjörinn í framkvæmdastjórn  (executive committe) Evrópusamtaka stjórnmálafræðinga, European Consortium for Political Research (ECPR) til næstu sex ára. Ólafur varð þriðji í röð 14 frambjóðenda, en að þessu sinni voru átta kosnir í framkvæmdastjórnina.  Meira ____________________________________________________________________

MORGUNVERÐARFUNDUR 25. APRÍL kl. 8-10:15 á Grand Hótel Reykjavík á vegum fjármálaráðuneytisins, Félags forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála.

STAÐA OG STARFSKILYRÐI FORSTÖÐUMANNA RÍKISSTOFNANA-Niðurstöður könnunar og tillögur starfshóps um umbætur í starfsumhverfi forstöðumanna. 

Meðal fyrirlesara eru Oddný Harðardóttir fjármálaráðherra, Ómar H Kristmundsson prófessor HÍ, Ágústa H. Gústafsdóttir, sérfræðingur í fjármálaráðuneytinu og Margrét Friðriksdóttir, skólameistari MK. Í pallborði: Margrét Friðriksdóttir, Gunnar Björnsson, skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu og Sigurbjörg Sigurgeirdóttir lektor HÍ. Fundarstjóri er Magnús Guðmundsson, forstjóri Landmælinga Íslands og formaður Félags forstöðumanna.

GLÆRUR AF FUNDINUM 

____________________________________________________________________

HVAÐ MÁ BETUR FARA Á VEF STOFNUNARINNAR? Námskeið  fyrir vefstjóra og umsjónarmenn opinberra vefja á vegum innanríkisráðuneytisins og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála. Námskeiðið er haldið tvisvar í vor, 2.-3 maí og 23.-24. maí kl. 9-12. Sérstaklega er boðað til námskeiðsins, en frekari upplýsingar eru HÉR.  Einnig má hafa samband við Ástu Möller astam@hi.is um nánari upplýsingar.

_________________________________________________________________

LEIÐSÖGN UM LÝÐRÆÐI Í SVEITARFÉLÖGUM- NÝTT RIT gefið út af Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands. Ritið er gefið út á rafrænu formi HÉR

Meðal umfjöllunarefna er: Lýðræði og þátttaka í sveitarfélögum; Sveitarstjórnarstigið og rétturinn til áhrifa; Meirihlutinn og hagsmunir minnihluta; Lýðræði, upplýsingar og rökræða; Þátttaka og þátttökuform; Félagsauður, félagsvirkniog sjálfboðastarf.

Höfundar efnis eru: Gunnar Helgi Kristinsson, Anna Guðrún Björnsdóttir, Grétar Þór Eysteinsson, Unnur Dís Skaptadóttir, Óskar Dýrmundur Ólafsson, Ólafur Þ Harðarson, Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir, Guðmundur Heiðar Frímannsson, Birgir Guðmundsson, Jón Hákon Magnússon, Helga Hafliðadóttir, Eggert Ólafsson, Guðfinna Kristjánsdóttir, Ólafía Dögg Ásgeirsdóttir, Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, Steinunn Hrafnsdóttir, Margrét s. Björnsdóttir og Sjöfn Vilhelmsdóttir.

______________________________________________________________________________________________________________________ PRENTUÐ ÚTGÁFA TÍMARITSINS STJÓRNMÁL OG STJÓRNSÝSLA 2011 ÁRGANGUR ER KOMIN ÚT.
 

Tímaritið Stjórnmál og Stjórnsýsla 7. árgangur 2011, prentuð útgáfa með fræðigreinum sem birtust í veftímariti stofnunarinnar 2011, er komið út. Tímaritið er í tveimur heftum vor og haust, alls rúmar 500 síður og birtast 27 ritrýndar greinar um fjölbreytileg efni á sviði stjórnmála og stjórnsýslu.
 
Áskriftarverð er kr 4100.-  Hægt er að gerast áskrifandi að prentaðri útgáfu tímaritsins. GERAST ÁSKRIFANDI  

NÁNARI UPPLÝSINGAR um greinar og höfunda.

________________________________________________________________

Opnun á nýju vefsetri.  www.nyskopunarvefur.is

Nýr vefur www.nyskopunarvefur.is var opnaður 3. nóvember  síðastliðinn á ráðstefnu um NÝSKÖPUN Í OPINBERUM REKSTRI  -NÝJAR LAUSNIR VIÐ NÝJUM ÁSKORUNUM     Vefurinn er samstarfsverkefni Stofnunar stjórnsýslufræða, fjármálaráðuneytisins, Félags forstöðumanna ríkisstofnana, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Rannís. 

Síðan er  tileinkuð nýsköpun í opinberum rekstri og stjórnun. Á vefnum verður vakin athygli á nýsköpun sem fer fram í opinberri starfsemi á Íslandi. Jafnframt veitir vefurinn aðgang að árangursríkum ferlum til að innleiða nýsköpunarhugsun í opinberum rekstri og umfjöllun um íslensk og erlend nýsköpunarverkefni.

Á ráðstefnunni voru jafnframt afhent nýsköpunarverðlaun í opinberum rekstri. Sjá nánar á www.nyskopunarvefur.is

_______________________________________________________________

Samstarfssamningur milli tveggja stofnana HÍ og  Landssambands eldri borgara  er lýtur að nýsköpun í þjónustu við eldri borgara.

 Þann 31. janúar  s.l. var undirrituð samstarfsyfirlýsing  milli Landssambands eldri borgara og Rannsóknarstofnunar í barna-og fjölskylduvernd og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands sem felur í sér  að þessir aðilar vinni saman að verkefnum sem lúta að nýsköpun í þjónustu við eldri borgara.Markmið samkomulagsins er að skapa vettvang fyrir nýsköpun, umræðu, upplýsingaöflun og miðlun upplýsinga, rannsóknir og þróunarstarf í málefnum eldri borgara.  Unnið verður sameiginlega að þessu með námskeiðahaldi, ráðstefnum og málþingum, einnig með söfnun upplýsinga og miðlun til eldri borgara um þjónustu, tilboð og niðurstöður rannsókna þeirra stofnana sem eiga aðild að samkomulaginu.  Einnig verður unnið að rannsóknum og könnunum á stöðu og þjónustu við eldri borgara í samvinnu við opinbera aðila og aðra.  Þá  viljum við auðvelda aðgengi eldri borgara að námskeiðum á vegum H.Í.   Samstarfsyfirlýsingin gildir til næstu 3ja ára eða til 31. jan. 2014, og sameiginleg verkefnisstjórn verður yfir þessu samstarfi skipuð frá LEB og H.Í. Samstarfið verður að loknum þessum þremur árum endurnýjað með tilliti til þess árangurs sem samstarf aðila hefur skilað. _________________________________________________________________________

 

 

 

Nýtt tölublað vefritsins Stjórnmál og stjórnsýsla 2. tbl. 6. árgangs 2010 KEMUR ÚT Í DAG:

http://www.stjornmalogstjornsysla.is/

Í ritinu eru 11 greinar, þar af sex ritrýndar greinar og fimm greinar almenns eðlis. Þær eru aðgengilegar á vef tímaritsins.

Í fræðilegum greinum er fjallað um meðlimaskipulag íslenskra stjórnmálaflokka eftir Gunnar Helga Kristinsson prófessor.  Einnig eru greinar um forsendur lagasetninga á verkföll á Íslandi 1985-2010; öryggisstefnur Norðurlandanna og áhrif þeirra á Ísland; íslenska vinnustaðamenningu; samanburð ákvarðanatöku einkafyrirtækja og opinberra stofnana og að lokum lýðræði í Evrópusambandinu.

Fræðigreinarnar eru eftir vísindamenn við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri, en  almennar greinar eru eftir kennara við HÍ og HA, auk aðila úr stjórnsýslunni og íslenskum stjórnmálum.

Í almennu efni fjallar m.a. Sturla Böðvarsson fv. forseti Alþingis um breytingar á þingskaparlögum og eftirlitshlutverk Alþingis og Birgir Guðmundsson dósent HA um rannsókn á kynningarmálum frambjóðenda  fyrir stjórnlagaþingskosningar 2010.   Einnig eru greinar um mótun atvinnustefnu, starfsumhverfi hins opinbera með hliðsjón af hlutverki stjórnenda og viðhorfi starfsmanna og um starfsréttindi MPA náms.  

Efni og höfundar

Að venju birtast bókadómar um nýjar bækur sem varða stjórnmál, stjórnsýslu og þjóðfélagsumræðu.  Þeir eru 14 talsins, m.a. um Ævisögu Gunnars Thoroddsens, sem Ólafur Þ. Harðarson skrifar;  bækur  Árna Mathiesen, Björgvins G Sigurðsonar og Guðrúnar Ögmundsdóttur og fleiri bækur.

Prentuð útgáfa af ritrýndum greinum sem birtast í tveimur heftum veftímaritsins 2010 kemur út síðvetrar 2011.  Hægt er að gerast áskrifandi að prentuðu útgáfu á tímaritinu og kostar það kr. 3800,-.   Gerast áskrifandi     _________________________________________________________________

  Diplóma í opinberri stjórnsýslu fyrir stjórnendur í heilbrigðisþjónustu -  NÝ NÁMSLEIÐ NÁMSÁRIÐ 2010-2011 Umsóknarfrestur fyrir vorönn 2011 er til 30. nóvember 2010. U

ULÝSINGAR UM NÁMIР        UPPLÝSINGAR ÚR KENNSLUSKRÁ

 SKRÁNING                          BÆKLINGUR UM NÁMIÐ ____________________________________________________________________ SAMSTARFSSAMNINGUR UM DIPLÓMA Í OPINBERRI STJÓRNSÝSLU FYRIR STJÓRNENDUR Í HEILBRIGÐISÞJÓNUSTU UNDIRRITAÐUR

 BÆKLINGUR UM NÁMIÐ í pdf

Samstarfssamningur um nýja námsleið fyrir stjórnendur í heilbrigðisþjónustu  háskólaárið 2010-2011 var undirritaður 21. maí s.l. milli Stjórnmálafræðideildar og samstarfsaðila um námið. Námið er hluti af meistaranámsframboði deildarinnar.  

Námsleiðin er sérstaklega skipulögð með þarfir núverandi og verðandi stjórnenda í heilbrigðisþjónustu í huga sem vilja efla stjórnunarþekkingu sína og öðlast dýpri skilning á starfsumhverfi heilbrigðisstofnana sem hluti af opinberum rekstri.  

Nýmæli er að fjórar deildir Háskóla Íslands geri með sér formlegt samkomulag um að standa saman að  námsleið, þar sem nemendur geta valið úr framboði á námskeiðum viðkomandi deilda á sviði opinberrar stjórnsýslu, stjórnunar og rekstrar, heilsuhagfræði og lýðheilsu.  Samkomulagið var undirritað þann 21. maí s.l.

Samstarfsaðilar Stjórnmálafræðideildar innan HÍ eru Viðskiptafræðideild, Hagfræðideild og Heilbrigðisvísindasvið , en samstarfsaðilar í heilbrigðisþjónustu  eru heilbrigðisráðuneytið, Landspítali háskólasjúkrahús, Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu, Landssamband sjúkrahúsa, Félag forstöðumanna sjúkrahúsa og Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu. 

Frekari upplýsingar

Upplýsingar úr kennsluskrá

Skráning

Myndin er frá undirritun samstarfssamningsins 21. maí s.l. í háskólaráðsherberginu í aðalbyggingu HÍ. Á myndinni eru frá vinstri Kristín Ingólfsdóttir háskólarektor, Björn Zoëga forstjóri Landspítala háskólasjúkrahúss, Þorgerður Einarsdóttir deildarforseti Stjórnmálafræðideildar, Þórólfur Matthíasson deildarforseti Hagfræðideildar, Sveinn Magnússon skrifstofustjóri heilbrigðisráðuneytisins, Ásta Möller forstöðumaður stofnunar stjórnsýslufræða Ingjaldur Hannibalsson, deildarforseti Viðskiptafræðideildar, Gísli Páll Pálsson, formaður Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu, Svanhvít Jakobsdóttir, forstjóri Heilsugæslunnar á  höfuðborgarsvæðisinu, Árni Sverrisson, formaður Félags forstöðumanna sjúkrahúsa, Halldór Jónsson, formaður Landssambands sjúkrahúsa, Guðmundur Þorgeirsson, deildarforseti læknadeildar f.h.  Heilbrigðisvísindasviðs ____________________________________________________________________

 SAMSTARF UM EFLINGU NÝSKÖPUNAR Í OPINBERUM REKSTRI

Samstarfsamningur um eflingu nýsköpunar í opinberum rekstri var undirritaður þann 21. maí síðastliðinn í Háskóla  Íslands að viðstaddri Katrínu Júlíusdóttur, iðnaðarráðherra, auk nemenda og erlendra fyrirlesara á námskeiði um nýsköpun í opinberum rekstri.   Að samstarfinu standa Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Rannsóknarmiðstöð Íslands (RANNÍS).

Aðilar munu vinna að markmiði samningsins með ýmsu móti; með námskeiðahaldi og ráðstefnum, þróunarverkefnum, rannsóknum og umræðuvettvangi fræðimanna, sérfræðinga og þeirra sem daglega starfa við opinbera þjónustu. Jafnframt að vinna að söfnun upplýsinga um nýsköpunarverkefni á sviði opinberrar stjórnsýslu og gera þær aðgengilegar og leita samstarfs við erlenda aðila á þessu sviði.   Miklar umbreytingar eru framundan í opinberum rekstri, m.a. vegna niðurskurðar á fjármagni til þjónustu og verkefna á vegum ríkisins og endurskipulagningar í kjölfarið.  Því má segja að þörf fyrir skipulagða nýsköpun hafi aldrei verið meiri.   

Samstarfssamningurinn er til þriggja ára.  Undir samninginn skrifuðu Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor og formaður stjórnar Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála, Halldór Jónsson forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar Íslands og Þorsteinn I Sigfússon forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

 Á mynd frá hægri eru Hallgrímur Jónasson,  Þorsteinn Sigfússon, Katrín Júlíusdóttir, Gunnar Helgi Kristinsson og Ásta Möller. 

News and events