Umboðsmaður Alþingis og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála bjóða til móttöku fimmtudaginn 21. mars kl. 15:30, strax að lokinni síðustu kennslustund sex vikna námskeiðs í stjórnsýslurétti. Móttakan er fyrir þátttakendur, kennara og aðra aðstandendur námskeiðsins og fer hún fram í húsakynnum umboðsmanns í Þórshamri, Templarasundi 5, 101 Reykjavík.