Flest námskeið sem Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála bíður uppá er hægt að taka í fjarnámi.
Bæði er hægt að fylgjast með námskeiði í beinni útsendingu í hljóð og mynd eða horfa á upptöku af námskeiði. Upptökurnar eru opnar í 3 vikur frá því að námskeiði lýkur.
Engan sérstakan búnað þarf til að fylgjast með námskeiðinu, bara nettengda tölvu.
Námskeið í fjarnámi fer þannig fram:
- Glærur námskeiðsins og hlekkur á útsendinguna eru send nemenda í tölvupósti áður en námskeiðið hefst.
- Þegar þið smellið á hlekkinn sjáið þið útsendinguna. Útsendingin byrjar um leið og kennsla hefst og gæti tafist um nokkrar mínútur meðan fólk er að koma sér fyrir í stofunni.
- Ef þið hafið ekki tök á að fylgjast með í beinni útsendingu er hægt að nota sama hlekkinn og horfa á upptöku frá og með kvöldinu og verður sú upptaka opin í nokkrar vikur frá því að námskeiðið er haldið. (Hlekkurinn er óvirkur í nokkra klukkutíma eftir námskeiðið á meðan upptakan er að hlaðast upp.)