Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála og Félag forstöðumanna ríkisstofnana kynna nýtt námskeið um
Áfallastjórnun – Crisis Management
Námskeið, tveir hálfir dagar:
27. apríl kl. 13:00 - 16:30
28. apríl kl. 09:00 - 12:30
Haldið í húsnæði Háskóla Íslands, Odda, stofu 106
Þátttökugjald: 31.800,- kr.
Námskeiðið er FULLBÓKAÐ. Þeir sem vilja skrást á biðlista eru beðnir að senda tölvupóst á stjornsyslaogstjornmal@hi.is með upplýsingum um nafn, netfang og símanúmer.
Áfallastjórnun er lykilþáttur í stjórnun fyrirtækja og stofnana. Síauknar kröfur eru gerðar um hæfi stjórnenda til að takast á við áföll sem varða þá starfsemi sem þeir bera ábyrgð á. Áföll geta orsakast vegna ýmissa atvika, t.d. vegna náttúruhamfara, slysa, fjárhagshruns, pólitískra hneykslismála o.fl. Í slíkum kringumstæðum brennur á stjórnendum að taka ákvarðanir í aðstæðum sem markast af óvissu og tímapressu. Ákvarðanir sem geta haft afgerandi afleiðingar fyrir þeirra stofnun (og/eða samfélag) sem og þeirra eigin starfsferil. Sum áföll næst að leysa á skjótan máta meðan önnur stigmagnast og enda í öngstræti. Togstreitu er hægt að leysa á diplómatískan hátt eða hún endar með átökum; mannslíf bjargast eða tapast; stjórnmálaflokkar falla eða ná völdum; stjórnsýsla lamast eða eflist o.s.frv.
Markmið námskeiðsins er að auka skilning þátttakenda á þeim þáttum sem hafa áhrif á hvernig stjórnendur skynja og bregðast við áföllum og þeim ferlum sem liggja að baki árangursríkri áfallastjórnun.
Markhópur: Stjórnendur, millistjórnendur og sérfræðingar hjá opinberum stofnunum og hjá sveitarfélögum
Á námskeiðinu er fjallað um og farið í:
- Hugsanleg áhætta: hugsanlegur undirbúningur og/eða forvarnir
- Forysta: leiðtogar, hópar og ráðgjafar
- Átök og samvinna í áföllum
- Upplýsingastjórnun á áfallatíma
- Áhrif kúltúrs á áfallastjórnun
- Endurreisn og lærdómur
Ávinningur þinn:
- að öðlast dýpri skilning á lykilþáttum og ferlum sem móta ákvarðanatöku stjórnenda
- að þekkja hegðunarmunstur stjórnenda og stofnanaskipulag sem hefur sérstaklega sýnt sig vera árangursríkt (eða vanmegnugt) við að spá fyrir um, undirbúa, bregðast við, og læra af áföllum
- að auka skilning á mikilvægi þess að tekið sé tillit til hugsanlegra áfalla í stefnumótun stofnana. Hvernig huga þurfi að bæði viðbúnaði, forvörnum og endurreisn í áætlanagerð.
Kennari:
Ásthildur Elva Bernharðsdóttir er doktor í stjórnmálafræði og Cand. Oecon. í viðskiptafræði. Hún hefur sinnt rannsóknum og kennslu í áfallastjórnun hér á landi, í Svíþjóð, í Bandaríkjunum og er í dag gestaprófessor við Kýótó háskólann í Japan.