
Mánudaginn 1. febrúar stóðu Félag stjórnmálafræðinga, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála og Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands fyrir opnum fundi þar sem rætt var um tjáningarfrelsi og ritskoðun í þeim nýja raunveruleika sem samfélagsmiðlar hafa skapað.
Í eftirmála forsetakosninga í Bandaríkjunum sauð uppúr og æstur múgur gerði innrás í þinghúsið þegar kjör Joes Bidens var formlega staðfest. Í kjölfarið lokuðu helstu samfélagsmiðlar aðgangi Donalds Trumps sem hafði nýtt sér Twitter óspart í forsetaembætti. Skiptar skoðanir hafa verið á réttmæti þessara lokana en helstu rök miðlanna hafa verið að málflutningur forsetans sé hreinlega svo hættulegur að ekki sé stætt á öðru en loka aðgangi hans.
Á þessum fundi fjölluðu Elfa Ýr Gylfadóttir fjölmiðlafræðingur og María Rún Bjarnadóttir lögfræðingur um málfrelsi og ritskoðun í þessu nýja umhverfi samfélagsmiðla. Sævar Finnbogason stjórnmálaheimspekingur stýrði umræðunum.
2. febrúar 2021 - 13:45