Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála

3.jpg

Á döfinni

25. apríl 2012. Morgunverðarfundur með Félagi forstöðumanna, Grænn ríkisrekstur.  Nánar auglýst síðar.

13. apríl 2012. Málþing Stjórnarráð 21. aldarinnar með forsætisráðuneytinu. Nánar auglýst síðar.  

21. mars 2012. Morgunverðarfundur með Félagi forstöðumanna og fjármálaráðuneytinu.  Störf og starfsumhverfi forstöðumanna ríkisstofnana.  Nánar auglýst síðar.  

8. mars 2012 kl. 8.30-12.30. Námskeið: Framkvæmd og túlkun upplýsingalaga nr. 50/1996. Kennari: Kjartan B. Björgvinsson lögfræðingur Skráning HÉR Nánari upplýsingar HÉR

7. mars 2012. Námskeið: Ráðning og starfslok  starfsmanna hjá ríki og sveitarfélögum kl 8:30-17. Kennari: Kjartan B. Björgvinsson lögfræðingur Skráning HÉR Nánari upplýsingar HÉR

22. og 23. febrúar 2012  kl. 13-17. Námskeið: Lagarammi og stjórnkerfi íslenskrar heilbrigðisþjónustu. Kennari Guðríður Þorsteinsdóttir lögfræðingur í velferðarráðuneytinu. Skráning.   Frekari upplýsingar

15. febrúar 2012. Námskeið: Saga, stofnanir og ákvarðanataka innan ESB. Kennari Baldur Þórhallsson, prófessor. Upplýsingar  Skráning

25. janúar 2012: Opinn fyrirlestur Robert Wade Oddi stofa 101 kl. 15:30-17:00 Auglýsing  GLÆRUR

25. janúar 2012: Ráðstefna um fjárlagaferlið með Félagi forstöðumanna ríkisstofnana kl. 8:00-12:00 í Grand hótel Reykjavík. GLÆRUR

23. janúar-29. febrúar. 6 vikna námskeið í stjórnsýslurétti. mánudaga og miðvikudaga kl. 14-16. Nánari upplýsingar. Betur auglýst síðar. Skráning HÉR

12. desember: Opinn hádegisfundur: Var Jón forseti með og á móti ESB? Hagnýting á minningu Jóns Sigurðssonar í stjórnmálum. kl. 12-13 í Odda 101 Frekari upplýsingar

22.nóvember: Málþing: Hjúkrunarheimili framtíðarinnar - heimilisfólk, aðbúnaður, þjónusta kl. 13:30-16:00 á Grand Hótel Reykjavík Pdf: Dagskrá  Nánari upplýsingar  GLÆRUR

4. nóvember: Íslensku kosningarannsóknirnar 1983-2009. Opnun gagnagrunns og nýjar rannsóknarniðurstöður.  Dagskrá

3. nóvember.  Ráðstefna um nýsköpun í opinberum rekstri 3. nóvember á Grand hótel Reykjavík frá kl. 8.30. Nýsköpunarverðlaun, opnun vefsíðu og fyrirlesari frá OECD.  Dagskrá hér á pdf formi.

Upptökur og Glærur ráðtstefna, glærurmálstofa1, glærurmálstofa2 

26. október. Opin ráðstefna Aðstæður fatlaðs fólks: Aðbúnaður, þjónusta, viðhorf, líðan, sjálfræði.kl. 13.00-16:45 í Hörpu, Norðurljósasal. GLÆRUR Nánari upplýsingar .

14. október: Opið málþing kl. 13:15-15:00"Þingræði á Íslandi í 100 ár. Uppruni, eðli og inntak þingræðis-framkvæmd þingræði á Íslandi. Stofa 105 Háskólatorgi Nánari upplýsingar    GLÆRUR

13. október: Námskeið, Saga, stofnanir og ákvarðanataka innan ESB kl. 13-17 í Lögbergi st. 101 HÍ. Nánari upplýsingar og skráning HÉR

21. september. Morgunverðarfundur kl. 8-12. Hvað er framundan í opinberum rekstri?-  Staðan, horfurnar, stefnan og áherslurnar Hvaða áhrif hefur efnahagslegur samdráttur haft á íslenskt samfélag?  Glærur

14. september Opinn afmælisfyrirlestur kl. 12:10-13:45.  "Hvernig má stuðla að betri stjórnmálum? "Designing a Better Politics?" Nánari upplýsingar

25.-27.ágúst: Evrópsk ráðstefna stjórnmálafræðinga ECPR.

1. júní: Hvaða áhrif hefur efnahagskreppan haft á félagslegt traust og félagsleg tengsl á Íslandi- Katarzyna Growiec  Nánari upplýsingar

17.-19. maí: Námskeið "Rafræn stjórnsýsla-möguleikar til umbreytinga á starfsemi stofnana." Nánari upplýsingar   Skráning

28.apríl: Morgunverðarfundur kl. 8-10 "Hvernig geta stjórnendur náð betri árangri í innkaupum?  Skráning  GLÆRUR

7. apríl: Opinn fundur með forystumönnum stjórnmálaflokkanna um Icesave kl. 12-13.15  í stofu 105 Háskólatorgi UPPTAKA AF FUNDINUM AF VEF RÚV

5. apríl: Opið málþing "Hvernig ber að standa að ráðningu í æðstu störf innan stjórnsýslunnar? kl. 15-17 stofu 5 Háskólatorgi. Auglýsing ppt  Glærur

31. mars: Opinn fyrirlestur "Icesave -samþykkt eða synjun. Hver er áhættan? Lee Buchheit.  Auglýsing pp

24. mars: Hádegisverðarfundur kl. 12-13 á Háskólatorgi stofu 105 "Í kjölfar hrunsins: Hvernig höldum við yfirsýn í miðri atburðarásinni?"  Auglýsing pdf   GLÆRUR Mark Blyth af fundinum.

23. mars: Morgunverðarfundur kl. 8-10 á Grand hótel Reykjavík"Hvernig er staðið að mati og mælingum á árangri í ríkisrekstri".  Nánari upplýsingar og glærur. 

17. mars: "Stjórnun breytinga- hagnýtt námsskeið" fyrir stjórnendur í opinberum stofnunum fimmtudaginn 17. mars kl. 13-17 í Námu, húsnæði Endurmenntunarstofnunar HÍ. Nánari upplýsingarSkráning

15. mars: "Virkni, afþreying, þátttaka"  Málþing um nýsköpun og rannsóknir um bætt heilbrigði og virkni eldri borgara þriðjudaginn 15. mars kl. 13.30-16 í húsnæði Háskóla Íslands við Stakkahlíð, stofa Skriða.  Glærur   Upptaka fyrri hluti     Upptaka seinni hluti (gæti þurft að bíða í nokkrar mínútur áður en það er hægt að spila)

7. mars: Opinn málfundur "Eru þjónustusamningar ekki að virka'" kl. 12-13.15 í Lögbergi stofu 101.  Upplýsingar

3. mars-8.apríl: Stjórnsýsluréttur fyrir starfsmenn stjórnsýslu ríkisins og stofnana. Einnig opið starfsmönnum sveitarfélaga.  Skráning  Upplýsingar

25. febrúar: Málþing "Daglegt líf, afkoma og aðstæður öryrkja" kl. 13-16 á Grand hótel Reykjavík.  Skráning  Upplýsingar

23. febrúar: Morgunverðarfundur kl. 8-10 á Grand hótel Reykjavík "Breyttar hugmyndir um stöðuveitingar og störf stjórnenda í opinberum rekstri".  Nánari upplýsingar   Skráning  GLÆRUR

31. janúar, 2.og 3. febrúar 2011: Rafræn stjórnsýsla - möguleikar til umbreytinga á starfsemi stofnana. Þriggja daga námskeið kl. 13-17
 Auglýsing      Nánari lýsing    Skráning

27. janúar 2011: Morgunverðarfundur kl. 8-10  "Viðbúnaður, fyrirhyggja, traust.  Hvernig býr stjórnsýslan sig undir óvænt atvik?" og málþings kl. 10.15-12 "Hvernig er staðið að áhættustjórnun, viðbúnaði og forvirku eftirliti hjá stofnunum ríkisins? Sviðsmyndir."   GLÆRUR   Frekari upplýsingar og skráning

16.desember 2010: "Skiptir þátttaka almennings máli fyrir sjálfbærni borgarsamfélaga?" Opinn hádegisfyrirlestur. Fyrirlesari Dr. Emmanuel Brunet-Jailly.  Auglýsing   Upptaka af fundinum

30. nóvember 2010: Morgunverðarfundur kl. 8-10 "Hollusta, traust og starfsandi á tímum breytinga og óvissu- Ráð til stjórnenda og starfsmanna hjá ríki og sveitarfélögum" í samvinnu við FFR. GLÆRUR

15. nóvember 2010 Málþing á Grand hótel kl. 13.30-17:  Nýsköpun í öldrunarþjónustu. „Stuðningur við eldri borgara til sjálfstæðra búsetu“   Nánari upplýsingar  GLÆRUR

11. nóvember 2010 Námskeið í HÍ kl. 8.30-12.30; Upplýsingaréttur almennings. Framkvæmd og túlkun upplýsingalaga nr 50/1996.  Kjartan Bjarni Björgvinsson, lögfræðingur hjá EFTA dómstólnum. Nánar upplýsingar

10. nóvember 2010: Námskeið kl. 10.15-12 á Grand hótel Reykjavík ; Ráðning og starfslok starfsmanna hjá ríkinu. Kjartan Bjarni Björgvinsson, lögfræðingur hjá EFTA dómstólnum. Nánar upplýsingar.

10. nóvember 2010: Morgunverðarfundur kl. 8-10 á Grand hótel Reykjavík "Starfsmannamál ríkisins- er breytinga þörf?" í samvinnu við FFR og Ríkisendurskoðun.     GLÆRUR

13. október 2010:  Morgunverðarfundur kl. 8-10 "Hvaða lærdóm geta opinberar stofnanir dregið af skýrslum rannsóknarnefndar Alþingis-hverju þarf að breyta í stjórnsýslunni" í samvinnu við Félag forstöðumanna ríkisstofnana (FFR) og Félag stjórnsýslufræðinga.  AUGLÝSING  GLÆRUR

7. október 2010:   Námskeið kl. 13:00-17:00  Samráð á erfiðum tímum. Arndís Jónsdóttir stjórnunarráðgjafi í samvinnu við FFR. Nánar lýsing.  Auglýsing

5. október 2010 Opinn fyrirlestur með Heiner Flassbeck í Hátíðasal Háskóla Íslands  kl. 12-13.30 "The trade that carried Iceland into trouble" í samvinnu við ASÍ. GLÆRUR

22.september 2010: Málefni fatlaðs fólks á tímamótun-horft til framtíðar. Málþing kl. 13.30-17  DAGSKRÁ     Dagskrá (pp) GLÆRUR

21. september 2010Skál fyrir genunum, peningunum og framtíðinni!" Kynjagreining á skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Kl 12.25-13.15. GLÆRUR

15. september 2010: Hvernig á að bregðast við niðurskurði næsta árs. Hver er stefna ríkisins? Hvað eru stofnanir þess að gera? - Morgunverðarfundur kl. 8-10 Glærur komnar á vefinn.

15. september 2010: Árangursríkar aðferðir í sparnaði í opinberum rekstri. "Margt smátt gerir eitt stórt"- Hvað getum við lært hvert af öðru? Málþing kl. 10.15-12- glærur komnar á vefinn.

16. júní 2010: Nauðsynlegar umbætur í fjármálum hins opinbera Morgunverðarfundur á vegum SA k. 8.30-10

20. maí 2010: UT dagurinn, Fyrir hádegi: Hvernig má standa að nýsköpun í opinberum rekstri og hverju getur hún skilað? GLÆRUR OG UPPTÖKUR

20. maí 2010:UT dagurinn; Eftir hádegi: Horft til framtíðar- Ráðstefna UT dagsins GLÆRUR

25.-30.apríl 2010: Uppgjör, ábyrgð og endurmat:Lærdómar af skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. GLÆRUR OG UPPTÖKUR 

21. apríl 2010: Málþing um konur, kosningar og stjórnmál GLÆRUR

13. apríl 2010: Námskeið um ráðningu og starfslok hjá ríkinu.

12.apríl - 18. maí 2010: 6 vikna námskeið í stjórnsýslurétti

25. mars 2010: Morgunverðarfundur Betri stjórn á útgjöldum ríkisins: Hverju þarf að breyta? - GLÆRUR

24. mars 2010 Námskeið um samráð á erfiðum tímum

18.mars 2010: Morgunverðarfundur: Hvernig fáum við það besta út úr heilbrigðisþjónustunni?

24. febrúar 2010: Námskeið um samráð við starfsfólks á erfiðum tímum

25. febrúar 2010: Morgunverðarfundur um Breytingastjórnun-ávinningur og áskoranir í opinberum rekstri.


Stjórnsýsluréttur 2012



Stjórnsýsluréttur 23. janúar – 29. febrúar 2012

Stjórnsýsluréttur fyrir starfsmenn stjórnsýslu ríkisins, ráðuneyta og stofnana, Reykjavíkurborgar og annarra sveitarfélaga -námskeið 23. janúar – 29. febrúar 2012.

Í janúar og febrúar nk. mun forsætisráðuneytið og Reykjavíkurborg í samstarfi við Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands og Félag forstöðumanna ríkisstofnana, bjóða í áttunda skipti sex vikna námskeið um stjórnsýslulögin og stjórnsýslurétt fyrir þá starfsmenn ríkisins (ráðuneyta og ríkisstofnana) og starfsmenn sveitarfélaga,  sem koma að meðferð mála og undirbúningi ákvarðana í stjórnsýslunni. Þótt námskeiðið sé fyrst og fremst ætlað ólöglærðum getur það einnig nýst lögfræðingum til upprifjunar. Nemendur munu hlýða á fyrirlestra, taka þátt í umræðum og lesa kennslurit. Eftir atvikum verður varpað upp stuttum raunhæfum verkefnum sem farið verður sameiginlega yfir í tímum.

Kennarar: Umsjónarmaður og aðalkennari er Trausti Fannar Valsson cand. jur., lektor við lagadeild Háskóla Íslands.  Aðrir kennarar eru Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, Hafsteinn Þór Hauksson, lektor við lagadeild Háskóla Íslands, Erna Guðrún Sigurðardóttir, lögfræðingur hjá umboðsmanni Alþingis og Ottó Björgvin Óskarsson, lögfræðingur hjá umboðsmanni Alþingis. 

Tími- kennsluefni- verð: Kennt verður í alls 54 kennslustundir, í 12 skipti kl. 14.00- 17.00, tvisvar í viku, á mánudögum og miðvikudögum. Námskeiðið hefst 23. janúar og lýkur 29. febrúar. Þátttökugjald er kr. 52.000, -, en ósamið er við fjarnámssetrin úti á landi um umsýslugjald v. þeirra nemenda. Innifalin eru ljósrituð kennslugögn, en nemendur afli sjálfir fræði- og kennslurita, sem líklega eru flest til hjá viðkomandi stofnun eða fást keypt í Bóksölu stúdenta (sjá lista hér að neðan).

Staðsetning: Kennt verður í Árnagarði stofu 310, nema annað verði tilkynnt.

Á námskeiðinu verður farið yfir málsmeðferðarreglur sem notaðar eru við töku stjórnvaldsákvarðana á fyrsta stjórnsýslustigi. Helstu lög sem kennd verða eru: Stjórnsýslulög nr. 37/1993 og upplýsingalög nr. 50/1996. Einnig er vikið að lögum nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga og gerð grein fyrir óskráðum meginreglum stjórnsýsluréttarins.

Meginmarkmið námskeiðsins er að nemendur öðlist skilning og nái tökum á helstu réttarreglum um meðferð stjórnsýslumála þar sem taka á stjórnvaldsákvarðanir. Því meginmarkmiði má skipta upp í tvö undirmarkmið:

1. Þekking / skilningur
-  Að nemendur þekki meginhugtök stjórnsýsluréttarins
-  Kunni þær meginreglur sem stjórnsýslukerfi ríkisins er byggt á.
-  Kunni þær málsmeðferðarreglur sem fylgja ber við töku stjórnvaldsákvarðana.
-  Öðlist innsýn í meginvandamál stjórnsýslunnar við meðferð stjórnsýslumála og geri sér grein fyrir þeim leiðum sem eru færar til þess að leysa þau.

2. Færni / leikni
- Nemendur nái valdi á því að beita málsmeðferðarreglum stjórnsýslu¬réttarins.
-  Nemendur gera raunhæf verkefni sem farið verður yfir í tíma.
-  Nemendum ber að taka virkan þátt í umræðum í tímum.

Námsefnislisti: Birt með fyrirvara um breytingar:
Bækur og bókahlutar:
1. Páll Hreinsson: Stjórnsýslulögin – skýringarrit, Reykjavík 1994.
2. Páll Hreinsson: Upplýsingalögin – kennslurit, Reykjavík 1996.
3. Starfsskilyrði stjórnvalda. Forsætisráðuneytið, Reykjavík 1999. (Skýrslan er  aðgengileg á www.althingi.is/altext/125/s/0376.html.)
4. Fjölrit með völdum greinum um stjórnsýslurétt. (Fjölritinu verður dreift í upphafi á námskeiðinu í ljósriti – önnur rit útvega nemendur sér sjálfir.)

Kennsluáætlun:

1. kennsludagur; mánudagurinn 23. janúar kl. 14.00-17.00
Kennari: Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis.
Lýsing: Í upphafi kynnir Trausti Fannar Valsson uppbyggingu námskeiðs, lesefni og aðra þætti. Tryggvi mun svo fjalla með almennum hætti um stjórnsýslukerfið, hlutverk og ábyrgð stjórnvalda, helstu réttarreglur sem á reynir við framkvæmd stjórnsýslu, stjórnsýslulögin og aðdraganda að setningu þeirra.
Lesefni: Páll Hreinsson: Stjórnsýslulögin – Skýringarrit, 19-40.

2. kennsludagur; miðvikudagurinn 25. janúar kl. 14.00-17.00
Kennari: Trausti Fannar Valsson, lektor við lagadeild HÍ.
Lýsing: Gildissvið stjórnsýslulaga. Til hvaða aðila taka lögin? Til hvaða athafna taka lögin?
Lesefni: Páll Hreinsson: Stjórnsýslulögin – Skýringarrit, 41-53

3. kennsludagur; mánudagurinn 30. janúar kl. 14.00-17.00
Kennari: Trausti Fannar Valsson, lektor við lagadeild HÍ.
Lýsing: Hugtakið aðili máls og valdmörk stjórnvalda.
Lesefni: Páll Hreinsson: Stjórnsýslulögin – Skýringarrit, 50-53, 55-88, og Páll Hreinsson: Valdmörk stjórnvalda. Grein sem birt var í Tímariti lögfræðinga 2005. Verður dreift til nemenda í fjölriti.

4. kennsludagur; miðvikudagurinn 1. febrúar kl. 14.00-17.00
Kennari: Trausti Fannar Valsson, lektor við lagadeild HÍ.
Lýsing: Hæfisreglur stjórnsýslulaga.
Lesefni: Páll Hreinsson: Stjórnsýslulögin – Skýringarrit, 55-57og 65-88.
Lesið einnig eftirfarandi álit umboðsmanns Alþingis UA nr. 2110/1997 en það er að finna á eftirfarandi heimasíðu: http://www.umbodsmaduralthingis.is/

5. kennsludagur; mánudagurinn 6. febrúar kl. 14.00-17.00 
Kennari: Hafsteinn Þór Hauksson, lektor við lagadeild HÍ.
Lýsing: Upphaf stjórnsýslumáls. Leiðbeiningarskylda stjórnvalda. Málshraðareglan.
Lesefni: Páll Hreinsson: Stjórnsýslulögin – Skýringarrit, 91-104 og181-182.

6. kennsludagur; miðvikudagurinn 8. febrúar kl. 14.00-17.00 
Kennari: Hafsteinn Þór Hauksson, lektor við lagadeild HÍ.
Lýsing: Rannsóknarreglan.
Lesefni: Páll Hreinsson: Stjórnsýslulögin – Skýringarrit, 105-117.

7. kennsludagur; mánudagurinn 13. febrúar kl. 14.00-17.00               Kennari: Ottó Björgvin Óskarsson, lögfræðingur hjá umboðsmanni Alþingis. Lýsing: Andmælareglan.Lesefni: Páll Hreinsson. Stjórnsýslulögin – Skýringarrit, 161-206

8. kennsludagur; miðvikudagurinn 15. febrúar kl. 14.00-17.00
Kennari: Trausti Fannar Valsson, lektor við lagadeild HÍ.
Lýsing: Upplýsingaréttur aðila máls.
Lesefni: Páll Hreinsson. Stjórnsýslulögin – Skýringarrit, 161-206 og Páll Hreinsson: „Upplýsingaréttur aðila stjórnsýslumáls“, grein sem dreift verður til nemenda.

9. kennsludagur; mánudagurinn 20. febrúar kl. 14.00-17.00
Kennari: Trausti Fannar Valsson, lektor við lagadeild HÍ.
Lýsing: Upplýsingaréttur almennings
Lesefni: Páll Hreinsson: Upplýsingalögin. Reykjavík 1996.

10. kennsludagur; miðvikudagurinn 22. febrúar kl. 14.00-17.00
Kennari:. Erna Guðrún Sigurðardóttir, lögfræðingur hjá umboðsmanni Alþingis. 
Lýsing: Ákvörðunartaka í stjórnsýslumáli, rökstuðningur stjórnvaldsákvarðana, birting og kæruleiðbeiningar.
Lesefni: Páll Hreinsson: Stjórnsýslulögin – Skýringarrit, 207-236.

11. kennsludagur; mánudagurinn 27. febrúar kl. 14.00-17.00
Kennari: Trausti Fannar Valsson, lektor við lagadeild HÍ.
Lýsing: Þagnarskyldureglur og reglur um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga

12. kennsludagur; miðvikudagurinn 29. febrúar kl. 14.00-17.00
Kennari: Trausti Fannar Valsson, lektor við lagadeild HÍ.
Lýsing: Málefnaleg stjórnsýsla. Lögmætisreglan og þjónustugjöld.