Rannsóknasetur um fjölmiðlun og boðskipti
Um setrið
Rannsóknasetur um fjölmiðlun og boðskipti er rannsókna-, fræðslu- og þjónustustofnun sem starfrækt er af Háskólanum á Akureyri og Háskóla Íslands.
Setrið starfar sem sjálfstæð eining innan Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Stjórnmálafræðideild á Félagsvísindasviði Háskóla Íslands.
Hlutverk Rannsóknaseturs um fjölmiðlun og boðskipti er að auka og efla rannsóknir á sviði fjölmiðla og fréttamennsku og að vera samstarfsvettvangur á milli fræðasamfélags og fjölmiðlafólks.
Image
![""](/sites/stjornsyslustofnun.hi.is/files/styles/squared_small/public/2022-01/fun-2015-11-25-kri-13.jpg?h=0d27ee61&itok=ra2RV3zy 479w, /sites/stjornsyslustofnun.hi.is/files/styles/squared_medium/public/2022-01/fun-2015-11-25-kri-13.jpg?h=0d27ee61&itok=cXQ0TvNk 480w, /sites/stjornsyslustofnun.hi.is/files/styles/squared_large/public/2022-01/fun-2015-11-25-kri-13.jpg?h=0d27ee61&itok=-KLdaPE3 768w)
Helstu áherslur
- eiga frumkvæði að og sinna rannsóknum
- sinna rannsóknartengdum þjónustuverkefnum
- efla tengsl rannsókna og háskólakennslu á sviði fjölmiðla og fréttamennsku
- hafa samstarf við aðrar innlendar og erlendar rannsóknastofnanir og fræðimenn á rannsóknasviði stofnunarinnar og efla tengsl við atvinnu- og þjóðlíf
- vera umræðu- og samstarfsvettvangur þeirra sem fást við fjölmiðlarannsóknir og kennslu um fjölmiðla og blaðamennsku og starfandi blaða- og fréttamanna
- veita nemum í rannsóknanámi aðstöðu og búnað til rannsóknastarfa og veita nemum þjálfun og reynslu í vísindalegum vinnubrögðum með því að gefa þeim kost á að vinna rannsóknarstörf á vegum stofnunarinnar eftir því sem unnt er
- kynna niðurstöður rannsókna, m.a. með útgáfu og gangast fyrir fræðilegum og hagnýtum námskeiðum, fyrirlestrum, málþingum og ráðstefnum um fjölmiðla og fréttamennsku á eigin vegum og í samstarfi við aðra
Image
![""](/sites/stjornsyslustofnun.hi.is/files/styles/squared_small/public/2022-01/kri_sottvarnaholf_200818_001.jpg?h=6b0b44ba&itok=l7ylAFp_ 479w, /sites/stjornsyslustofnun.hi.is/files/styles/squared_medium/public/2022-01/kri_sottvarnaholf_200818_001.jpg?h=6b0b44ba&itok=ZmPiAUZM 480w, /sites/stjornsyslustofnun.hi.is/files/styles/squared_large/public/2022-01/kri_sottvarnaholf_200818_001.jpg?h=6b0b44ba&itok=iNheeuRg 768w)
Tengiliður setursins
![]() |
Ragnar Karlsson | Verkefnisstjóri | 5254519 | ragnark [hjá] hi.is | https://iris.rais.is/is/persons/fda13ca8-611b-49a5-b682-3a92a735c8b3 | Stjórnmálafræðideild |