Valds- og lýðræðisrannsóknin 2014-2017
Valds- og lýðræðisrannsókn Félagsvísindasviðs var rannsóknarverkefni til fjögurra ára (2014-2017) sem var meðal annars styrkt af Aldarafmælissjóði Háskóla Íslands.
Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í Stjórnmálafræðideild, stýrði rannsókninni.
Um 30 fræðimenn úr ólíkum deildum Félagsvísindasviðs og víðar tóku þátt í henni. Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála hélt utan um framkvæmd og skipulag.
Í rannsókninni var athyglinni beint að megingerendum í valds- og lýðræðiskerfum íslensks samfélags svo sem að:
- löggjafanum
- framkvæmdavaldinu
- stjórnsýslunni
- stjórnmálaflokkum
- hagsmunasamtökum
- fjölmiðlum
- almenningi