Header Paragraph

20 ára afmælishefti TVE-Tímarits um viðskipti og efnahagsmál komið út

Image

Komið er út á vefnum efnahagsmal.is 2. tölublað 20. árgangs hins ritrýnda TVE-Tímarits um viðskipti og efnahagsmál – 20 ára afmælishefti tímaritsins.

Eftirtaldar níu greinar koma út að þessu sinni:

„Frelsi til að leggja mitt af mörkum til samfélagsins”: Upplifun innflytjendakvenna í frumkvöðlastarfi 
Þóra H. Christiansen og Erla S. Kristjánsdóttir

Upplifun kvenna í ofþyngd af fordómum og mismunun á vinnumarkaði 
Steinunn Helga Sigurðardóttir og Ingi Rúnar Eðvarðsson

Smáatriðin skipta sköpum: Áhrif birtustigs og litastyrks á skynjun og hegðun neytenda
Tinna Björk Hilmarsdóttir og Auður Hermannsdóttir

Samskiptafærni stjórnenda ríkisstofnana: Upplifun, reynsla og þarfir starfsfólks af samskiptum við stjórnendur
Helga Kristín Gestsdóttir og Inga Jóna Jónsdóttir

Tengsl þjónustugæða, orðspors og ímyndar við frammistöðu skipulagsheilda
Þórhallur Örn Guðlaugsson 

Viðhorf endurskoðenda til endurskoðunarnefnda 
Einar Guðbjartsson, Eyþór Ívar Jónsson og Jón Snorri Snorrason

Narratives of ‘bad leadership‘: Experiences and perspectives of successful Icelandic female leaders
Sigrún Lilja Einarsdóttir og Einar Svansson

Brotthvarf menntaðra lögreglumanna úr starfi 
,,þörf er á róttækum breytingum á starfsumhverfi og stjórnun lögreglunnar”

Nanna Lind Stefánsdóttir og Ásta Dís Óladóttir

“Shared accountability”: Experiences of employees in a servant leadership organization guided by growth
Sigurður Ragnarsson, Erla Sólveig Kristjánsdóttir, Sigrún Gunnarsdóttir og Dirk van Dierendonck

TVE er gefið út af Seðlabanka Íslands og viðskipta- og hagfræðideildum Háskólans á Bifröst, Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík. Formaður ritstjórnar er Þórhallur Örn Guðlaugsson en ásamt honum sitja í ritstjórn þau Arney Einarsdóttir, Axel Hall, Birgir Þór Runólfsson og Lúðvík Elíasson. Umsjón með útgáfunni hefur Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála.