Rannsóknasetur um fjölmiðlun og boðskipti

Um setrið

Rannsóknasetur um fjölmiðlun og boðskipti er rannsókna-, fræðslu- og þjónustustofnun sem starfrækt er af Háskólanum á Akureyri og Háskóla Íslands.

Setrið starfar sem sjálfstæð eining innan Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Stjórnmálafræðideild á Félagsvísindasviði Háskóla Íslands.

Hlutverk Rannsóknaseturs um fjölmiðlun og boðskipti er að auka og efla rannsóknir á sviði fjölmiðla og fréttamennsku og að vera samstarfsvettvangur á milli fræðasamfélags og fjölmiðlafólks.

Image
""

Helstu áherslur

  • eiga frumkvæði að og sinna rannsóknum
  • sinna rannsóknartengdum þjónustuverkefnum
  • efla tengsl rannsókna og háskólakennslu á sviði fjölmiðla og fréttamennsku
  • hafa samstarf við aðrar innlendar og erlendar rannsóknastofnanir og fræðimenn á rannsóknasviði stofnunarinnar og efla tengsl við atvinnu- og þjóðlíf
  • vera umræðu- og samstarfsvettvangur þeirra sem fást við fjölmiðlarannsóknir og kennslu um fjölmiðla og blaðamennsku og starfandi blaða- og fréttamanna
  • veita nemum í rannsóknanámi aðstöðu og búnað til rannsóknastarfa og veita nemum þjálfun og reynslu í vísindalegum vinnubrögðum með því að gefa þeim kost á að vinna rannsóknarstörf á vegum stofnunarinnar eftir því sem unnt er
  • kynna niðurstöður rannsókna, m.a. með útgáfu og gangast fyrir fræðilegum og hagnýtum námskeiðum, fyrirlestrum, málþingum og ráðstefnum um fjölmiðla og fréttamennsku á eigin vegum og í samstarfi við aðra
Image
""

Tengiliður setursins

Mynd af gervimanni Ragnar Karlsson Verkefnisstjóri 5254519 ragnark [hjá] hi.is https://iris.rais.is/is/persons/fda13ca8-611b-49a5-b682-3a92a735c8b3 Stjórnmálafræðideild