Hvenær
16. apríl 2026
08:30 til 10:00
Hvar
Utan háskólasvæðis
Reykjavík Natura (áður Loftleiðir), Nauthólsvegi 52
Nánar

Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála boðar til morgunverðarfundar, í samstarfi við Félag forstöðumanna ríkisstofnana, þar sem fjallað verður um hagræðingu í ríkisrekstri og áform um breytingu á lögum á um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, m.a. um afnám svokallaðrar áminningarskyldu . Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 16. apríl á Reykjavík Natura (áður Loftleiðir), Nauthólsvegi 52. Morgunhressing í boði frá kl. 08.10 og dagskrá hefst kl. 08.30. Fundi lýkur kl. 10.00.

Á fundinum mun Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra fjalla um hagræðingu í ríkisrekstri og áform um breytingar á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, en m.a. er áformað að afnema áminningarskyldu sem undanfara uppsagnar eða lausnar um stundarsakir. Viðbrögð við ávarpi ráðherra veita þær Kolbrún Halldórsdóttir, formaður Bandalags háskólamanna, og Sigríður Kristinsdóttir, sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu og formaður Félags forstöðumanna ríkisstofnana. Að lokum munu þau taka þátt í umræðum og svara spurningum fundargesta.

Þátttökugjald er kr. 14.000.

Smelltu hér til að skrá þig.

Dagskrá:

Ávarp ráðherra
Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra

Viðbrögð
•    Kolbrún Halldórsdóttir formaður Bandalags háskómanna
•    Sigríður Kristinsdóttir, sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu og formaður Félags forstöðumanna ríkisstofnana

Spurningar og umræður í fundarlok

Fundarstjórn:
Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála
 

Deila