Eftirlitsumhverfið og innra eftirlit hjá opinberum aðilum

Image
Fólk á fyrirlestri

Eftirlitsumhverfið og innra eftirlit hjá opinberum aðilum

Námskeiðið fer fram í stað- og fjarnámi. Staðnámið fer fram í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð. Fjarnámið er sent út í beinu streymi og einnig verður upptaka af námskeiðinu aðgengileg fyrir þátttakendur eftir að því lýkur.

  • Þriðjudaginn 29. mars 2022, kl. 9.00-12.30
  • Þátttökugjald: kr. 19.500-

Umsjónarmaður og fyrirlesari

  • Anna Margrét Jóhannesdóttir, innri endurskoðandi Vegagerðarinnar og fyrrverandi fagstjóri fagsviðs Innri endurskoðunar hjá Reykjavíkurborg.

 

Markhópur 

Stjórnendur og sérfræðingar í stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga, stjórnarmenn fyrirtækja í opinberri eigu og kjörnir fulltrúar.

Markmið

Að kynna fyrir þátttakendum hugtakið innra eftirlit og mikilvægi markvissrar uppbyggingar innra eftirlits innan skipulagsheilda.

Á námskeiðinu verður eftirfarandi spurningum svarað

Hvað er innra eftirlit? Hver ber ábyrgð á innra eftirliti? Hvernig birtist öflug innri eftirlitsmenning innan skipulagsheildar? Hvert er hlutverk áhættugreiningar við uppbyggingu á öflugu innra eftirliti? Hvers konar eftirlitsaðgerðir skipta máli við uppbyggingu á öflugu innra eftirliti?

Um fyrirlesara 
Anna Margrét Jóhannesdóttir er með MPA frá Pennsylvania State University og CIA, faggildur innri endurskoðandi (e. Certified Internal Auditor). Hún hefur starfað við innri endurskoðun í 18 ár, nú sem innri endurskoðandi Vegagerðarinnar en áður starfaði hún meðal annars sem fagstjóri fagsviðs Innri endurskoðunar hjá Reykjavíkurborg. Hún hefur haldið námskeið sem og fyrirlestra á ráðstefnum um innra eftirlit og annað efni sem tengist faggrein innri endurskoðunar.