TVE-Tímarit um viðskipti og efnahagsmál er gefið út tvisvar á ári í opnum aðgangi á vefsíðunni efnahagsmal.is. Tímaritinu er ætlað að vera vettvangur fyrir fræðilegar ritgerðir í viðskipta- og hagfræði. Útgefendur eru Viðskiptadeild Háskólans á Bifröst, Viðskiptafræðideild og Hagfræðideild Háskóla Íslands, Viðskipta- og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík og Seðlabanki Íslands. Á vefsíðu tímaritsins er að finna leiðbeiningar fyrir höfunda greina og sniðmát fyrir þær. Umsjón með útgáfunni hefur Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands.

Frestur til að skila greinum fyrir desemberheftið er til og með 1. október.

Deila