Header Paragraph

Hádegisfundur 7. mars: Ótímabært sáðlát, svikarar og frekjur - Má segja hvað sem er um stjórnmálafólk?

Image
hádegisfundur kosningar USA

Félag stjórnmálafræðinga og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála standa fyrir hádegisfundi um orðræðu og áreitni gagnvart stjórnmálafólki þriðjudaginn 7. mars kl.12:00-13:00 í Odda 101, Háskóla Íslands.

Reglulega er fjallað um að umræða gagnvart stjórnmálafólki sé óvægin og að stjórnmálafólk verði fyrir áreiti vegna starfs síns. Sumir segja að stjórnmálafólk verði bara að láta þetta yfir sig ganga, að þetta sé eðli starfs þeirra, á meðan aðrir benda á að þetta geti orðið til þess að kjörnir fulltrúar endist stutt í starfi. 

Umfjöllunarefni hádegisfundarins verður um hvort að umræðan gagnvart stjórnmálafólki sé óvægin og hvort að það sé í lagi að segja bara hvað sem er um stjórnmálafólk. Gestir fundarins verða þau Sóley Tómasdóttir kynja- og fjölbreytileikafræðingur, Bríet B. Einarsdóttir fjölmiðla- og boðskiptafræðingur og Eva Marín Hlynsdóttir prófessor.

Fundurinn er opinn öllum, aðgangur er ókeypis og mun fara fram á íslensku.