Hvenær
3. júní 2026
14:00 til 17:00
Hvar
Oddi
101
Nánar

Félag stjórnmálafræðinga stendur fyrir árlegum degi stjórnmálafræðinnar miðvikudaginn 3. júní, í Odda stofu 101, í samstarfi við Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála. Þemað í ár er „Hart til hægri: Frá jaðri til áhrifa í stjórnmálum Vesturlanda“ og verður hægri sveiflan á Vesturlöndum skoðuð frá ýmsum sjónarhornum.

Dagskránni lýkur, að vanda, með afhendingu verðlauna fyrir bestu lokaritgerðir í stjórnmálafræði á árinu 2025 og móttöku fyrir viðstadda.

Dagskrá:

Hart til hægri: Frá jaðri til áhrifa í stjórnmálum Vesturlanda

14:00 – 14:45: Stóra samhengið og staðan í dagHulda Þórisdóttir og Eiríkur Bergmann prófessorar og þáttastjórnendur Skuggavaldsins

14:45 – 15:45: Unga fólkið, óhefðbundnir fjölmiðlar og rísandi hægri vængur stjórnmálannaSkúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri NetvísDagbjört Rós Jónsdóttir Strandberg, fagráðgjafi, Center for Digital PædagogikSilja Jensdóttir, nemi við Menntaskólann við SundSigurður Óli Karlsson, nemi við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands

15:45 – 16:00 Hlé

16:00 – 16:30: Háskólar, málfrelsi og upplýst umræðaSilja Bára Ómarsdóttir rektor Háskóla Íslands og Svanhildur Þorvaldsdóttir dósent við Stjórnmálafræðideild HÍ

16:30 – 17:00 Viðurkenning fyrir bestu lokaritgerðir í stjórnmálafræði árið 2025G. Rósa Eyvindardóttir, formaður dómnefnda fyrir ritgerðaverðlaun

17:00 Móttaka á kaffistofunni í Odda fyrir alla viðstadda

Fundarstjóri verður Svanhildur Þorvaldsdóttir, formaður Félags stjórnmálafræðinga og dósent í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands

Öll velkomin.

Viðburðurinn fer fram á íslensku.

Aðgangur ókeypis.

Sjá facebook viðburðarsíðu hér.

Deila