Hvenær
11. nóvember 2026
13:00 til 16:00
Hvar
Askja
Fyrirlestrasalur á jarðhæð (N-132, á vinstri hönd þegar gengið inn)
Nánar

Smelltu hér til að skrá þig á námskeiðið

 

- Miðvikudaginn 11. nóvember 2026, kl. 13.00-16.00
- Öskju, náttúrufræðahúsi HÍ, og í streymi

- Þátttökugjald: kr. 29.500-

Umsjón og fyrirlesarar
• Kristín Benediktsdóttir, umboðsmaður Alþingis. 
• Kjartan Bjarni Björgvinsson, dómari við Landsrétt.

Efni námskeiðsins 
Í námskeiðinu verður sjónum beint að álitaefnum sem varða grundvallarreglur á sviði stjórnsýsluréttar og reynt hefur á í starfi umboðsmanns Alþingis og dómaframkvæmd Hæstaréttar og Landsréttar undanfarin ár. Meðal annars verður fjallað um nýlegan dóm Hæstaréttar um hugtakið stjórnvaldsákvörðun, dóma Landsréttar um hvaða kröfur verði gerðar til rannsóknar stjórnvalda þegar þau taka stjórnvaldsákvarðanir og hvaða kröfur megi gera til aðila sjálfra um að upplýsa mál. Einnig verður vikið að nýlegum dómum um túlkun kjarasamninga á opinberum vinnumarkaði og farið yfir nýlega þróun í norrænum stjórnsýslurétti.

Markhópur
Starfsfólk ríkis og sveitarfélaga sem vinnur með álitaefni á sviði stjórnsýsluréttar. Lögfræðingar sem koma að ráðgjöf og málarekstri sem tengjast stjórnsýslurétti og vilja uppfæra þekkingu sína.
 
Um fyrirlesara 
Kristín Benediktsdóttir er umboðsmaður Alþingis. Hún hefur meðal annars starfað sem prófessor við Lagadeild Háskóla Íslands og formaður og nefndarmaður í ýmsum stjórnsýslunefndum auk þess að vera settur dómari við Landsrétt.

Kjartan Bjarni Björgvinsson er dómari við Landsrétt og hefur meðal annars starfað sem dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, settur umboðsmaður Alþingis, formaður rannsóknarnefndar Alþingis og dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík.
 

Deila