Hvenær
21. apríl 2026
13:00 til 16:30
Hvar
Rafrænt
Nánar

Smelltu hér til að skrá þig á námskeiðið

Vekjum athygli á að námskeiðið fer einungis fram í fjarnámi. Fjarnámið er sent út í beinu streymi og einnig verður upptaka af námskeiðinu aðgengileg fyrir fjarnema eftir að því lýkur.

  • Þriðjudaginn 21. apríl 2026, kl. 13.00-16.30
  • Þátttökugjald: kr. 26.500-

Umsjónarmaður og fyrirlesari: 
Kjartan Bjarni Björgvinsson, dómari við Landsrétt

Markmið

  • Að veita yfirsýn yfir helstu lagareglur sem gilda um ráðningu starfsfólks hjá ríki og sveitarfélögum samkvæmt lögum og reglum stjórnsýsluréttarins.
  • Að þátttakendur öðlist færni í að beita reglunum í opinberu ráðningarferli, svo sem við auglýsingu starfs, meðferð máls, val á umsækjendum, aðgang að gögnum og rökstuðning ráðningar. 
  • Öll umfjöllun verður studd raunhæfum dæmum sem farið verður yfir í námskeiðinu. 

Í námskeiðinu verður leitast við að svara spurningum á borð við: 

  • Hvenær er skylt að auglýsa starf og hvaða kröfur eru gerðar til auglýsingar? 
  • Að hvaða marki er heimilt að færa fólk á milli starfa eða breyta störfum án auglýsingar? 
  • Hvaða reglur gilda um mat á hæfni umsækjenda um opinber störf og hvaða svigrúm hafa opinberar stofnanir við val á umsækjendum? 
  • Hvaða gögnum er stofnunum skylt að afhenda umsækjendum og hvaða heimildir hafa stjórnvöld til að takmarka þann aðgang? 
  • Hvernig á að rökstyðja ráðningu til þess sem óskar eftir því og hversu ítarlegur þarf sá rökstuðningur að vera? 
  • Er mögulegt og heimilt að nota gervigreindarforrit við meðferð ráðningarmála? 
  • Umfjöllunin verður studd dæmum og þá m.a. vísað til nýlegra dóma Landsréttar og álita umboðsmanns Alþingis og dóma Hæstaréttar.

Markhópur:
Stjórnendur og starfsfólk hjá stofnunum ríkisins og sveitarfélaga, ásamt ráðgjöfum, sem koma að undirbúningi og ákvörðun um ráðningu í opinbert starf og öðrum ákvörðunum í starfsmannamálum.  

Kennari:
Kjartan Bjarni Björgvinsson er dómari við Landsrétt. Hann hefur meðal annars starfað sem settur umboðsmaður Alþingis, formaður rannsóknarnefndar Alþingis og dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík.    

Deila