Hvaða reglur gilda um starfslok hjá ríki og sveitarfélögum?

Image
hádegisfundur kosningar USA
HVENÆR
28. mars 2023
09:00 til 12:30
HVAR
Rafrænt
NÁNAR

Hvaða reglur gilda um starfslok hjá ríki og sveitarfélögum?

Smelltu hér til að skrá þig á námskeiðið

 

Vekjum athygli á að námskeiðið fer einungis fram í fjarnámi. Fjarnámið er sent út í beinu streymi og einnig verður upptaka af námskeiðinu aðgengileg eftir að því lýkur.

  • Þriðjudagurinn 28. mars 2023, kl. 9.00-12.30
  • Þátttökugjald: kr. 21.500-

Umsjónarmaður og fyrirlesari

  • Kjartan Bjarni Björgvinsson, héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur.

Markhópur

Stjórnendur og starfsmenn hjá stofnunum ríkisins og sveitarfélaga sem koma að undirbúningi og ákvörðun um ráðningu og starfslok í opinbert starf, sem að öðrum ákvörðunum í starfsmannamálum.

Markmið 

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist haldgóða þekkingu á því hvernig standa ber að öllum helstu ákvörðunum í málefnum opinberra starfsmanna samkvæmt lögum nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og stjórnsýslulögum nr. 37/1993. Fjallað verður um hvaða lagalegu mörk stjórnunarvaldi yfirmanna eru sett og þær reglur sem gilda um starfslok opinberra starfsmanna. Umfjöllunin verður studd dæmum um framkvæmd laganna og þá m.a. vísað til dóma Hæstaréttar og álita umboðsmanns Alþingis.

Námskeiðið tekur m.a. á eftirfarandi álitaefnum

Svigrúm stjórnenda til að gera breytingar á verkefnum opinberra starfsmanna, skyldur starfsmanna hjá hinu opinbera, hvernig á að taka á málum þegar starfsmaður sinnir starfi sínu á ófullnægjandi máta og brottvikning starfsmanns. Fjallað er um lagalegar afleiðingar mistaka við að taka á þessum málum. Þátttakendur fá yfirlit yfir helstu álitamál i tengslum við starfsmannastjórn hjá hinu opinbera og möppu með helstu dómum og álitum umboðsmanns sem vitnað er til í námskeiðinu.

Um fyrirlesara 

Kjartan Bjarni Björgvinsson er héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur. Kjartan var formaður úttektarnefndar ÍSÍ og einn af höfundum skýrslu um úttekt á viðbrögðum og málsmeðferð KSÍ vegna frásagna um kynferðisofbeldi sem kynnt var í desember sl. Kjartan er með meistarapróf í lögum frá London School of Economics and Political Science og hefur meðal annars starfað sem settur umboðsmaður Alþingis, formaður rannsóknarnefndar Alþingis og dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík.