Hvenær er skylt að tilkynna aðstæður barna til barnaverndaryfirvalda?

Image
HVENÆR
13. september 2024
09:00 til 10:30
HVAR
Utan háskólasvæðis
Rafrænt
NÁNAR

Smelltu hér til að skrá þig á námskeiðið

Vekjum athygli á að námskeiðið fer einungis fram í fjarnámi. Fjarnámið er sent út í beinu streymi og einnig verður upptaka af námskeiðinu aðgengileg eftir að því lýkur.

  • Föstudagurinn 13. september 2024, kl. 9.00-10.30 (ath., áður auglýst dagsetning var 11. september)

  • Þátttökugjald: kr. 14.000-

Umsjónarmaður og fyrirlesari

  • Kjartan Bjarni Björgvinsson, dómari við Landsrétt.

Viðfangsefni

Einstaklingar sem stöðu sinnar og starfa vegna hafa afskipti af málum barna bera skyldu til að tilkynna til barnaverndarþjónustu ef þeir hafa ástæðu til að ætla að barn, búi við óviðunandi uppeldisaðstæður, verði fyrir ofbeldi eða annarri vanvirðandi háttsemi eða stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu. Í námskeiðinu verður farið yfir hvernig barnaverndarþjónustu ber að fara með slíkar tilkynningar og hvaða sérstöku kröfur eru gerðar í því sambandi. Fjallað verður um hvaða mistök eru algeng á þessu sviði og hverjar séu afleiðingar þeirra.

Markhópur

Starfsfólk barnaverndarþjónustu, kennarar, skólaliðar, íþróttaþjálfarar og aðrir sem starfa með börnum.

Markmið

Að þátttakendur átti sig á því hvenær tilkynningarskylda þeirra samkvæmt barnaverndarlögum verður virk og að starfólk barnaverndarþjónustu átti sig á því hvaða reglur gilda um meðferð slíkra tilkynninga.

Um fyrirlesara 

Kjartan Bjarni Björgvinsson er dómari við Landsrétt. Hann er með meistarapróf í lögum frá London School of Economics and Political Science og hefur áður meðal annars starfað sem héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, settur umboðsmaður Alþingis, formaður rannsóknarnefndar Alþingis og dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík.