Hvernig á að fara með beiðni um aðgang að gögnum? Praktísk álitaefni

Image
HVENÆR
21. nóvember 2024
09:00 til 12:30
HVAR
Rafrænt
NÁNAR

Smelltu hér til að skrá þig á námskeiðið

Vekjum athygli á að námskeiðið fer einungis fram í fjarnámi. Fjarnámið er sent út í beinu streymi og einnig verður upptaka af námskeiðinu aðgengileg eftir að því lýkur.

- Fimmtudagurinn 21. nóvember 2024, kl. 9:00-12:30. 

- Þátttökugjald: kr. 24.900-

Umsjónarmaður og fyrirlesari:

- Kjartan Bjarni Björgvinsson, dómari við Landsrétt.

Markhópur:
Allir sem starfa hjá opinberum stofnunum eða sveitarfélögum og þurfa að svara beiðnum um aðgang að gögnum samkvæmt stjórnsýslulögum, upplýsingalögum eða öðrum lögum.

Markmið:
Að þátttakendur kunni skil á helstu reglum sem gilda um hvenær stofnanir eða sveitarfélög þurfa að afhenda gögn í sinni vörslu og hafi þekkingu á þeim úrræðum sem eru til staðar við að gera meðferð beiðna auðveldari, fljótlegri og skilvirkari. 
 
Um námskeiðið:
Á námskeiðinu verður farið yfir kröfur um form og efni beiðna um aðgang að gögnum og hvernig stjórnvöld geta best liðsinnt borgaranum í þessu skyni. Þá verður einnig fjallað um þær áskoranir sem stjórnvöld standa frammi fyrir þegar aðili máls biður um aðgang að gögnum í máli sem inniheldur mikið magn gagna, t.d. við ráðningu í starf þegar umsækjendur eru margir. Vikið verður að því hvort stjórnvald geti að einhverju leyti tekið mið af umfangi máls við slíkar aðstæður og hvernig best er að leysa úr því.

Um fyrirlesara:
Kjartan Bjarni Björgvinsson er dómari við Landsrétt. Kjartan er með meistarapróf í lögum frá London School of Economics and Political Science og hefur áður meðal annars starfað sem héraðsdómari, settur umboðsmaður Alþingis og dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík.