Hvenær
18. maí 2026
13:00 til 16:30
Hvar
Rafrænt
Nánar

Smelltu hér til að skrá þig á námskeiðið

Vekjum athygli á að námskeiðið fer einungis fram í fjarnámi. Fjarnámið er sent út í beinu streymi og einnig verður upptaka af námskeiðinu aðgengileg fyrir fjarnema eftir að því lýkur.

  • Mánudaginn 18. maí 2026, kl. 13.00-16.30
  • Þátttökugjald: kr. 26.500-

Umsjónarmaður og fyrirlesari

Kjartan Bjarni Björgvinsson, dómari við Landsrétt

Markhópur

Öll sem starfa hjá opinberum stofnunum eða sveitarfélögum og þurfa að svara beiðnum um aðgang að gögnum samkvæmt stjórnsýslu-, upplýsingalögum eða öðrum lögum.

Markmið

Að þátttakendur kunni skil á helstu reglum sem gilda um hvenær stofnanir þurfa að afhenda gögn í sinni vörslu og hafi þekkingu á þeim úrræðum sem eru til staðar við að gera meðferð beiðna auðveldari, fljótlegri og skilvirkari.

Um námskeiðið

Á námskeiðinu verður farið yfir kröfur um form- og efni beiðna um aðgang að gögnum og hvernig stjórnvöld geta best liðsinnt borgaranum í þessu skyni. Þá verður einnig fjallað um þær áskoranir sem stjórnvöld standa frammi fyrir þegar aðili máls biður um aðgang að gögnum í máli sem inniheldur mikið magn gagna, t.d. við ráðningu í starf þegar umsækjendur eru margir. Vikið verður að því hvort stjórnvald geti að einhverju leyti tekið mið umfangi máls við slíkar aðstæður og hvernig best er að leysa úr því.

Um fyrirlesara

Kjartan Bjarni Björgvinsson er dómari við Landsrétt. Hann hefur áður meðal annars starfað sem settur umboðsmaður Alþingis, formaður rannsóknarnefndar Alþingis og dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík.  

Deila