Hvenær
20. maí 2026
12:00 til 13:00
Hvar
Oddi
101
Nánar

Félag stjórnmálafræðinga, í samstarfi við Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands, standa fyrir hádegisfundi miðvikudaginn 20. maí kl. 12:00-13:00. Facebook-viðburðasíða hér

Við munum taka stöðuna að loknum sveitarstjórnarkosningum og velta upp ýmsum spurningum, eins og:

  • hverjar eru stóru línurnar í kosningunum á landsvísu? 
  • hver vann og hver tapaði?
  • hverjir kusu og hverja kusu þeir?
  • hvað virkaði í kosningabaráttunum og hvað mistókst

Þátttakendur eru:

Eva Marín Hlynsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði við HÍ

Hafsteinn B. Einarsson, nýdoktor í stjórnmálafræði við HÍ

Bryndís Ísfold, stjórnmálafræðingur og aðjúnkt við Háskólann á Bifröst

Við hefjum fundinn á stuttum inngangserindum og svo taka við pallborðsumræður og samtal við gesti. Fundurinn fer fram á íslensku og er öllum opinn!

🗓️ Miðvikudagur, 20. maí, 2026

🕦 12:00-13:00

📍 Oddi 101, Háskóli Íslands

 

Deila