Header Paragraph

Málþing 23. maí: Lýðræði, kjósendur og stjórnmálaflokkar

Image
Ólafur Þ. Harðarson

Í tilefni af sjötugsafmæli Ólafs Þ. Harðarsonar, prófessors emerítus, standa Félag stjórnmálafræðinga og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála fyrir málþingi honum til heiðurs þann 23.maí kl. 14:00 til 16:30 í Odda 101 í Háskóla Íslands. Boðið verður upp á léttar veitingar í kjölfar málþingsins.

Ólafur er flestum landsmönnum vel kunnugur sem einn af okkar helstu sérfræðingum um kosningar, stjórnmál, kjósendur og stjórnmálaflokka. Í störfum sínum hjá Háskóla Íslands hefur hann kennt þúsundum nemenda stjórnmálafræði og rannsóknaaðferðir, hann hefur byggt upp Íslensku kosningarannsóknina, gefið út fjöldann allan af greinum og bókum og verið tíður viðmælandi í fjölmiðlum sem álitsgjafi um stjórnmál.

Á málþinginu munu nokkrir af nánum samstarfsmönnum Ólafs flytja erindi honum til heiðurs þar sem meðal annars verður fjallað um hans framlag til stjórnmálafræðinnar, hvort sem það er í formi rannsókna, kennslu eða upplýstrar álitsgjafar til almennings um stjórnmál.

Dagskrá:

Gunnar Helgi Kristinsson – Erindi stjórnmálafræðinnar

Eva H. Önnudóttir – Kjósendur eru ekki heimskir

Bogi Ágústsson – Að miðla og greina svo allir skilji

Guðmundur Heiðar Frímannsson - Vinur minn Ólafur Þ. Harðarson: Af kjósendum, heimspekingum og öðrum bjálfum

Fundarstjóri verður Guðbjörg Andrea Jónsdóttir.

Sjá má um viðburðinn á Facebook hér: https://www.facebook.com/events/1085374478711833?ref=newsfeed

Fundurinn er opinn öllum og eru allir samstarfsmenn, fyrrverandi nemendur og aðrir áhugasamir hvattir til að mæta. Aðgangur er ókeypis og mun málþingið fara fram á íslensku.