Morgunverðarfundur: Stjórnsýsluúttektir Ríkisendurskoðunar

Image
hæstiréttur
HVENÆR
18. apríl 2023
08:00 til 10:00
HVAR
Utan háskólasvæðis
Grand Hótel Reykjavík
NÁNAR

Morgunverður hefst kl. 08.00 og dagskrá hefst kl. 08.30.

Hvað er skoðað í stjórnsýsluúttektum Ríkisendurskoðunar? Hvernig? Hverjar eru áherslur Ríkisendurskoðunar? Hvaða lærdóma draga stofnanir af slíkri úttekt?

Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála boðar til morgunverðarfundar, í samstarfi við Félag forstöðumanna ríkisstofnana, þar sem fjallað verður um stjórnsýsluúttektir Ríkisendurskoðunar. Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 18. apríl á Grand Hótel Reykjavík. Morgunverður hefst kl. 08.00 og dagskrá hefst kl. 08.30.

Þátttökugjald er kr. 9.500.

Hér er hægt að skrá sig til leiks

 

Dagskrá:

Stjórnsýsluúttektir Ríkisendurskoðunar
Jarþrúður Hanna Jóhannsdóttir, sviðsstjóri stjórnsýslu- og lögfræðisviðs Ríkisendurskoðunar

Um lærdóma af stjórnsýsluúttekt:
- Sigríður Kristinsdóttir, sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu
- Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins

Spurningar í fundarlok

Fundarstjóri er Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála