Hótanir, áreitni og ofbeldi gegn opinberum starfsmönnum hafa farið vaxandi á undanfarin ár. Fleiri dæmi eru um að starfsfólk í stjórnsýslunni hafi verið áreitt og hrellt vegna ákvarðana sem það hefur komið að eða vegna þess að skjólstæðingar eru ósáttir við þá þjónustu eða afgreiðslu sem þeir hafa fengið. Jafnframt hefur kvörtunum um áreitni og einelti á vinnustað fjölgað.
Smelltu hér til að skrá þig á námskeiðið
Vekjum athygli á að námskeiðið fer einungis fram í fjarnámi. Fjarnámið er sent út í beinu streymi og einnig verður upptaka af námskeiðinu aðgengileg fyrir fjarnema eftir að því lýkur.
- Fimmtudaginn 21. maí 2026, kl. 9.00-12.30
- Þátttökugjald: kr. 26.500-
Umsjónarmaður og fyrirlesari
Kjartan Bjarni Björgvinsson, dómari við Landsrétt
Efni námskeiðs
Í námskeiðinu verður farið yfir helstu lagalegu skyldur vinnuveitenda í stjórnsýslunni til að tryggja öryggi, heilsu og velferð starfsfólks á vinnustað og velt upp álitamálum að hvaða marki sú skylda taki eða eigi að taka til verndar utan vinnustaðarins. Fjallað verður um hvernig opinberar stofnanir geta brugðist við einstaklingum sem eiga í samskiptum við stofnanir og eftir atvikum takmarkað aðgengi þeirra að þjónustu eða beint samskiptum í ákveðinn farveg. Jafnframt verður vikið að refsivernd opinberra starfsmanna og fyrirbærinu ,,réttarþrjóskuröskun". Leitast verður að við að svara spurningum á borð við:
- Hver eru mörkin milli harðrar gagnrýni og áreitni?
- Hvaða breytingar hafa samfélagsmiðlar haft í för með sér?
- Hvenær ber stofnun skylda til að grípa til sérstakra ráðstafana?
- Hvaða lagalegu úrræði hefur stofnun þegar réttindi borgaranna stangast á við réttindi starfsfólks?
- Hvaða ábyrgð ber stofnun þegar málin fara úrskeiðis?
Um fyrirlesara
Kjartan Bjarni Björgvinsson er dómari við Landsrétt. Hann hefur meðal annars starfað sem settur umboðsmaður Alþingis, formaður rannsóknarnefndar Alþingis og dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík.