Header Paragraph

Opinn fundur um 5% þröskuldinn í alþingiskosningum

Image
Alþingi

Félag stjórnmálafræðinga og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála standa fyrir opnum fundi miðvikudaginn 12. febrúar um svokallaðan 5% þröskuld alþingiskosninga. Er hann nauðsyn eða óréttlæti?

Frummælandi verður Agnar Freyr Helgason, dósent í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, en hann mun m.a. kynna frumniðurstöður rannsókna á mögulegri taktískri kosningahegðun í nýliðnum alþingiskosningum.

Auk Agnars verða í pallborði:
Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði
Þorkell Helgason, stærðfræðingur
Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi

Setja fundinn í dagatal (gegnum Uglu).

Fundurinn verður haldinn á Háskólatorgi, stofu HT-103, miðvikudaginn 12. febrúar kl. 12:00 - 13:00.

Öll velkomin.