Header Paragraph

Opinn hádegisfundur: Innrásin í Úkraínu 2. mars

Image
Innrásin í Úkraínu. Pútín Rússlandsforseti á gulum og bláum grunni

Hádegisfundur 2. mars kl. 12.00 - 13.15 í Öskju

Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála og Félag stjórnmálafræðinga standa fyrir opnum fundi um innrás Rússlands í Úkraínu og þær afleiðingar sem innrásin hefur fyrir öryggi í Evrópu.
 
Flemming Splidsboel Hansen, sérfræðingur hjá dönsku alþjóðamálastofnuninni (DIIS) með áherslu á Rússland, Úkraínu og Hvíta-Rússland, tekur þátt í fundinum gegnum fjarfundarbúnað.
 
Í pallborði sitja Jón Ólafsson, prófessor í menningarfræði, Rósa Magnúsdóttir, prófessor í sagnfræði, Guðbjörg Ríkey Th. Hauksdóttir, doktorsnemi, Andrei Menshenin, blaðamaður auk Baldurs Þórhallssonar, prófessors í stjórnmálafræði, sem tekur einnig þátt í umræðum í gegnum fjarfundarbúnað.
 
Öll velkomin meðan húsrúm leyfir.