Header Paragraph

Ráðstefna: Alþjóðasamvinna á krossgötum - Hvert stefnir Ísland? 20. apríl

Image
Alþjóðasamvinna á krossgötum

Árleg ráðstefna Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, Norræna hússins og utanríkisráðuneytisins í samstarfi við Félag stjórnmálafræðinga og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála verður haldin í Norræna húsinu miðvikudaginn 20. apríl.

Í ár eins og síðastliðin ár bjóðum við til samtals þar sem við kryfjum alþjóðamálin og allar þær áskoranir sem við okkur blasa í alþjóðasamfélaginu í dag.

Dagskrá:
 
Ráðstefnustjóri: Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands
 
9:00 - 9:10 Setning ráðstefnu
Sabina Westerholm, forstjóri Norræna hússins
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands
 
9:10 - 9:20 Opnunarávarp
Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu
 
9:20 - 10:30 Stríð í Evrópu: Áhrif á öryggisumhverfi Norðurlandanna
Erindi: Flemming Splidsboel Hansen, sérfræðingur hjá dönsku alþjóðamálastofnuninni (DIIS) með áherslu á Rússland, Úkraínu og Hvíta-Rússland
 
Pallborð: Auðunn Atlason, alþjóðafulltrúi hjá forsætisráðuneytinu, Brynja Huld Óskarsdóttir, öryggis- og varnarmálafræðingur, Rósa Magnúsdóttir, prófessor í sagnfræði við HÍ og Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar
 
Málstofustjóri: Bogi Ágústsson, frétta- og dagskrárgerðarmaður
 
10:30 - 10:45 Kaffi
 
10:45 - 11:45 Brestir í alþjóðakerfinu: Er hið frjálslynda heimskipulag í uppnámi?
Erindi: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrv. forstjóri Lýðræðis- og mannréttindaskrifstofu ÖSE
 
Pallborð: Eva Bjarnadóttir, sérfræðingur hjá UNICEF á Íslandi, Kári Hólmar Ragnarsson, lektor við lagadeild HÍ, Vilborg Ása Guðjónsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur
 
Málstofustjóri: Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans
 
11:45 - 12:15 Léttur hádegisverður
 
12:15 - 13:15 Nýjar öryggisáskoranir: Netöryggi, upplýsingaóreiða og lýðskrum
Erindi: Rolf Fredheim, sérfræðingur hjá öndvegissetri NATO Strategic Communication Centre of Excellence í Riga (á Zoom)
 
Pallborð: Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar, Guðmundur Arnar Sigmundsson, forstöðumaður CERT-IS, Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði og stjórnarformaður Alþjóðamálastofnunar, Jóna Sólveig Elínardóttir, sérfræðingur á öryggis- og varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins
 
Málstofustjóri: Auður Örlygsdóttir, sérfræðingur hjá Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands
 
13:15 - 13:30 Kaffi
 
13:30 - 14:30 Öryggismál á norðurslóðum
 
Erindi: Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra og sérfræðingur í varnar- og öryggismálum
 
Pallborð: Friðrik Jónsson, sérfræðingur í varnar- og öryggismálum og formaður BHM, Guðbjörg Ríkey Hauksdóttir, doktorsnemi við Háskóla Íslands og Sóley Kaldal, sérfræðingur í áhættugreiningu hjá Landhelgisgæslunni
Málstofustjóri: Davíð Stefánsson, stjórnmálafræðingur
 
14:30 - 14:40 Kaffihlé
 
14:40 - 15:50 Litið fram á veginn: Hvert á Ísland að stefna?
Fulltrúar stjórnmálaflokka ræða framtíð utanríkisstefnu Íslands og þær áskoranir sem blasa við í öryggis- og varnarmálum
Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, Bjarni Jónsson, þingmaður Vinstri grænna, Daði Már Kristófersson, varaformaður Viðreisnar, Guðlaugur Þór Þórðarson,umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, Jakob Frímann Magnússon, þingmaður Flokks fólksins, Jóhann Friðrik Friðriksson, þingmaður Framsóknar, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata
Málstofustjóri: Kristján Kristjánsson, fjölmiðlamaður
 
15:50 - 16:00 Lokaorð
 
Móttaka og uppistand með Sögu Garðarsdóttur
 
Komdu og vertu með - við lofum fjörugum og fræðandi umræðum! Öll velkomin