Hvenær
25. ágúst 2022
14:00 til 16:00
Hvar
Oddi
Oddi 101 Háskóli Íslands
Nánar

Ráðstefna Félags stjórnmálafræðinga, Félagsfræðingafélags Íslands og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála.

Loftslagsvá, hamfarahlýnun, sjálfbærni og kolefnaspor eru hugtök sem heyrast æ oftar í opinberri umræðu þegar umhverfismál ber á góma. Flestum ber saman um að bregðast þurfi við umhverfisvá, en greinir á um hver viðbrögðin eigi að vera. Umhverfismál eru af mörgum talin eitt mikilvægasta úrlausnarefni samfélagsins og snertir nær allar hliðar mannlífs, hvort sem um er að ræða atvinnulíf, heimili eða aðra þætti samfélagsins. Í þessari opnu dagskrá verður fjallað um nýjar rannsóknir á sviði félagsvísinda á rannsóknum á umhverfisvitund Íslendinga, viðbrögðum stjórnvalda og horft til framtíðar.

Flutt verða fjögur erindi:

Afleiðingar aðgerða í loftlagsmálum: Viðhorf Íslendinga eftir þjóðfélagsstöðu og í alþjóðlegu samhengi
Sigrún Ólafsdóttir, prófessor í félagsfræði við HÍ.

Hernaðurinn gegn hnettinum
Þorvarður Árnason, forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Höfn.

Aðlögun að loftlagsbreytingum í litlum og afskekktum samfélögum sem búa við snjóflóðahættu á Íslandi
Jóhanna Gísladóttir, doktor í umhverfis- og auðlindafræði.

Samfélags- og loftslagsvá? Hvers konar traust hefur áhrif á stuðning einstaklinga við mismunandi stefnur stjórnvalda í loftslagsmálum?
Sóllilja Bjarnadóttir, doktorsnemi í félagsfræði við HÍ.

Fundarstjóri verður Bjargey Anna Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri framhaldsnáms í Umhverfis- og auðlindafræði.

Að lokinni dagskrá verður boðið upp á léttar veitingar á kaffistofunni á 2.hæð í Odda.

Öll velkomin.

Sjá nánari upplýsingar á Facebook viðburði ráðstefnunnar

Deila