Header Paragraph

TVE: Kall eftir greinum

Image
Frá fundi vegna útgáfu TVE, Tímarits um viðskipti og efnahagsmál, Magnús Þór Torfason

TVE - Tímarit um viðskipti og efnahagsmál kemur næst út í desember. Skilafrestur fyrir innsendar greinar er 1. október nk.

Sniðmát fyrir greinar má finna á vef tímaritsins.
 
Tímaritið er vettvangur fyrir ritrýndar fræðilegar greinar á sviðum viðskipta- og hagfræði. Það er gefið út af Viðskiptadeild Háskólans á Bifröst, Viðskiptafræðideild og Hagfræðideild Háskóla Íslands, Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík og Seðlabanka Íslands. Í ritnefnd sitja fulltrúar allra samstarfsaðila. Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands heldur utan um útgáfu tímaritsins.