Upptaka af útgáfufundi - Er mikið flokkaflakk nýja normið?
1. tölublað 21. árgangs ritrýnda tímaritsins Stjórnmál & stjórnsýsla kom út miðvikudaginn 18. júní. Af því tilefni var haldinn útgáfufundur í Odda 101 í HÍ og móttaka á eftir. Á fundinum kynnti Hafsteinn Einarsson, nýdoktor við Stjórnmálafræðideild HÍ, grein hans og félaga hans í Íslensku kosningarannsókninni - þeirra Agnars Freys Helgasonar, Evu H. Önnudóttur, Huldu Þórisdóttur, Jóns Gunnars Ólafssonar og Ólafs Þ. Harðarsonar (öll við Stjórnmálafræðideild HÍ) þar sem greind voru gögn um alþingiskosningarnar 2024, m.a. á grunni kannana meðal kjósenda og frambjóðenda að kosningunum loknum. Fundarstjóri var Eva Marín Hlynsdóttir, prófessor og deildarforseti Stjórnmálafræðideildar HÍ, sem situr í ritstjórn tímaritsins.
Upptöku af fundinum má nálgast hér.
Greinina og annað efni tímaritsins má nálgast hér á vefsíðu þess.