Header Paragraph

Utanríkisstefna á umbrotatímum: Öryggi, varnir og alþjóðasamskipti

Image

Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, Varðberg – samtök um vestræna samvinnu og alþjóðamál, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands og Félag stjórnmálafræðinga efna til kosningafundar um utanríkis- og varnarmál í Auðarsal, Veröld - húsi Vigdísar, fimmtudaginn 14. nóvember kl. 17:00 til 18:30.

Á tímum mikilla breytinga og áskorana í alþjóðasamfélaginu er mikilvægt að kjósendur fái skýra mynd af stefnu flokkanna í varnar- og öryggismálum.

Alþjóðastjórnmál samtímans einkennast af fjölbreyttum áskorunum og aukinni spennu í samskiptum stórveldanna. Hörð átök ógna öryggi víðsvegar um heim á sama tíma og fólksflótti eykst og stórfelldra aðgerða er þörf til að sporna gegn loftslagsvánni. Hnignun lýðræðislegra gilda og auknir einsræðistilburðir valda einnig óvissu um framtíð frjálslynds lýðræðis. Hvaða afleiðingar hefur þessi breytta heimsmynd í för með sér fyrir íslenska utanríkisstefnu? Hvernig ætla stjórnmálaflokkarnir að bregðast við þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir á alþjóðasviðinu?

Á fundinum munu fulltrúar allra stjórnmálaflokka sem bjóða fram í öllum kjördæmum í komandi kosningum taka þátt í pallborðsumræðum og ræða stefnu sína í utanríkis-, öryggis- og varnarmálum.

Þátttakendur í pallborðsumræðum
🔸Arnar Þór Jónsson, oddviti Lýðræðisflokksins í Suðvesturkjördæmi
🔸Hanna Katrín Friðriksson, oddviti Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi norður
🔸Inga Sæland, oddviti Flokks fólksins í Reykjavíkurkjördæmi suður
🔸Jóhann Friðrik Friðriksson, í 3. sæti Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi,
🔸Logi Einarsson, oddviti Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi
🔸Gunnar Smári Egilsson, oddviti Sósíalista í Reykjavíkurkjördæmi norður
🔸Gísli Rafn Ólafsson, í 2. sæti Pírata í Suðvesturkjördæmi
🔸Rósa Björk Brynjólfsdóttir, í 2. sæti VG í Reykjavíkurkjördæmi norður
🔸Sigríður Á. Andersen, oddviti Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður
🔸Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, í 2. sæti Sjálfstæðisflokks í Suðvesturkjördæmi

Fundarstjórar Bogi Ágústsson, fréttamaður RÚV, og Rakel Þorbergsdóttir, fyrrverandi fréttastjóri RÚV

Öll velkomin en mikilvægt að skrá sigSkráning hér.

Sjá facebook viðburð hér.