Hvenær
22. júní 2026
16:30 til 17:30
Hvar
Oddi
101
Nánar

Útgáfufundur og -boð í tilefni af útgáfu 1. tbl. 22. árg. tímaritsins Stjórnmála & stjórnsýslu, mánudaginn 22. júní, kl. 16:30 í Odda, stofu 101.

Á fundinum mun Gylfi Magnússon, prófessor við viðskiptafræðideild HÍ, kynna grein sína um breytingu á lífeyriskerfi opinberra starfsmanna úr skilgreindum réttindum í skilgreind iðgjöld, en róttækar breytingar voru gerðar á lífeyriskerfi opinberra starfsmanna á árunum 2016 og 2017. Gylfi segir breytingarnar hafa verið gallaðar og að sjóðfélagar hafi orðið fyrir verulegu fjárhagslegu tjóni sem ríkið kunni að þurfa að bæta þeim.

Fyrirspurnir og umræður verða að loknu erindi Gylfa og síðan verður boðið upp á léttar veitingar á annarri hæð Odda.

Deila