Header Paragraph

Útgáfa vorheftis tímaritsins Stjórnmál & stjórnsýsla 20. júní 2024

Image

Útgáfuboð og fyrirlestur í tilefni af útkomu 1. tbl. 20. árg. tímaritsins Stjórnmál & stjórnsýsla verður haldið fimmtudaginn 20. júní kl. 16:30, í Odda 101, í HÍ.

Íslenskir blaðamenn í breyttum heimi: Aukin áhersla á klassísk gildi en undir vaxandi þrýstingi

Við opnunina kynna þau Valgerður Jóhannsdóttir, dósent við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands og Birgir Guðmundsson, prófessor við Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri, grein þeirra og Jóns Gunnars Ólafssonar, nýdoktors við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, um rannsókn á viðhorfum íslenskra blaðamanna til hlutverks síns í samfélaginu og upplifun þeirra af utanaðkomandi þrýstingi á störf sín.

Fyrirspurnir og umræður verða að loknu erindi þeirra og síðan verður boðið upp á léttar veitingar á annarri hæð Odda.

Öll velkomin.