Útgáfufundur Stjórnmála & stjórnsýslu 18. júní - Er mikið flokkaflakk nýja normið?
Miðvikudaginn 18. júní kemur út 1. tölublað 21. árgangs tímaritsins Stjórnmála & stjórnsýslu. Á útgáfufundi, sama dag kl. 16:30 í Odda 101, kynnir Hafsteinn Einarsson, nýdoktor við Stjórnmálafræðideild HÍ, grein hans og félaga hans í Íslensku kosningarannsókninni – þeirra Agnars Freys Helgasonar, Evu H. Önnudóttur, Huldu Þórisdóttur, Jóns Gunnars Ólafssonar og Ólafs Þ. Harðarsonar.
Um helmingur kjósenda kaus annan flokk árið 2024 en þau höfðu gert í kosningunum 2021. Í rannsókninni er kafað ofan í orsakir þessa mikla flokkaflakks og fjallað um hvort það sé e.t.v. nýja normið í íslenskum stjórnmálum.
Fyrirspurnir og umræður verða að loknu erindi þeirra og síðan verður boðið upp á léttar veitingar á annarri hæð Odda.
Fundinum stýrir Eva Marín Hlynsdóttir prófessor, deildarforseti Stjórnmálafræðideildar HÍ og fulltrúi í ritstjórn Stjórnmála & stjórnsýslu.
Tenging við Uglu dagatal HÍ hér.
Öll velkomin.