Á döfinni er innleiðing nýrrar tilskipunar ESB um netöryggi (NIS2) sem hefur í för með sér stórauknar kröfur á því sviði m.a. fyrir opinberar stofnanir og sveitarfélög auk fyrirtækja í greinum sem flokkast undir samfélagslega mikilvæga innviði á borð við orku, samgöngur, heilbrigðisþjónustu, fjármálaþjónustu, veitustarfsemi, póstþjónustu o.fl.
Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála stóð fyrir fjölsóttum morgunverðarfundi um auknar kröfur um netöryggi, í samstarfi við Félags forstöðumanna ríkisstofnana, á Grand Hótel Reykjavík miðvikudaginn 18. nóvember. Þar kom m.a. fram að skv. áætlaðri tímalínu innviðaráðuneytis um innleiðingu tilskipunarinnar er horft til þess að drög að frumvarpi verði lögð fram í samráðsgátt snemma árs 2027 og að mögulega geti frumvarp til laga um netöryggi komið fram á næsta vorþingi og ný lög tekið gildi í ársbyrjun 2028. Við þessa áætlun eru þó eðlilega ýmsir fyrirvarar. Núgildandi lög um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða eru nr. 78/2019, en NIS2 tilskipunin hefur sem fyrr segir í för með sér stórauknar kröfur og gildissvið.
Á fundinum kom m.a. fram að málafjöldi hja CERT-IS, netöryggissveit íslenskra stjórnvalda, hefur næstum fjórfaldast frá árinu 2021 og voru einstök mál alls 2.312 árið 2025 (en 598 árið 2021). Viðfangsefnið, öryggisógnin, fer þannig ört vaxandi. Þá þýðir tilkoma gervigreindar að nauðsynlegur viðbragðstími ef veikleiki uppgötvast er nú orðið mældur í fáum klukkustundum í stað jafnvel einhverra vikna fyrir fáum árum síðan. Á vef CERT-IS er m.a. að finna leiðbeiningar um netöryggisatvik.
Á vef Fjarskiptastofu má nálgast stöðumat netöryggis sem er opið öllum fyrirtækjum og stofnunum sem vilja fá betri yfirsýn yfir netöryggisstöðu sína og greina tækifæri til umbóta. Þar er einnig m.a. að finna NIS2 könnun, en markmið hennar er að veita aðilum leiðbeinandi og aðgengilega yfirsýn yfir það hvort starfsemi þeirra kunni að falla undir gildissvið NIS2-tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/2555 um ráðstafanir til að ná háu sameiginlegu stigi netöryggis (NIS2-tilskipunin).
Nánar um dagskrá fundarins á Grand Hótel Reykjavík
Á fundinum fjallaði Sigríður Rafnar Pétursdóttir, lögfræðingur í innviðaráðuneytinu, um nýju tilskipunina og innleiðingu hennar og þær kröfur sem hún hefur í för með sér fyrir stofnanir, sveitarfélög og fyrirtæki í fyrrnefndum greinum. Þá fjallaði Sandra Ósk Bender, fagstjóri atvikameðhöndlunar hjá CERT-IS, netöryggissveit íslenskra stjórnvalda, um það öryggisálag sem öllum stundum er til staðar á ýmsa innviði og nefndi dæmi um afleiðingar þess þegar öryggisbrestir verða. Loks fjallaði Sigrún Lilja Sigmarsdóttir, fagstjóri eftirlits með öryggi net- og upplýsingakerfa hjá Fjarskiptastofu, um hlutverk æðstu stjórnenda í netöryggismálum og mikilvægi markvissrar uppbyggingar stjórnunarkerfis net- og upplýsingaöryggis. Jafnframt var vikið að þeim áskorunum sem stofnanir, sveitarfélög og fyrirtæki í viðkomandi geirum standa frammi fyrir við að efla öryggi og viðnámsþrótt net- og upplýsingakerfa sinna. Að því loknu tóku við fyrirspurnir og umræður en fundarstjóri var Gústaf Adolf Skúlason forstöðumaður Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála.
Á myndinni hér fyrir neðan má sjá frummælendur fundarins. Frá vinstri talið eru það Sigríður Rafnar Pétursdóttir, Sandra Ósk Bender og Sigrún Lilja Sigmarsdóttir.