Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála boðar til morgunverðarfundar, í samstarfi við Félag forstöðumanna ríkisstofnana, þar sem fjallað verður um auknar kröfur á sviði netöryggis. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 18. nóvember á Grand Hótel Reykjavík. Morgunhressing í boði frá kl. 08.10 og dagskrá hefst kl. 08.30. Fundi lýkur kl. 10.00.
Ný og víðtækari tilskipun
Á döfinni er innleiðing nýrrar tilskipunar ESB um netöryggi (NIS2) sem hefur í för með sér stórauknar kröfur á því sviði m.a. fyrir opinberar stofnanir og sveitarfélög auk fyrirtækja í greinum sem flokkast undir samfélagslega mikilvæga innviði á borð við orku, samgöngur, heilbrigðisþjónustu, fjármálaþjónustu, veitustarfsemi, póstþjónustu o.fl.
Þátttökugjald er kr. 14.000.
Dagskrá:
Ný og mun víðtækari tilskipun um netöryggi
Sigríður Rafnar Pétursdóttir, lögfræðingur í innviðaráðuneytinu
Álagið á netöryggi og dæmi um afleiðingar
Sandra Ósk Bender, fagstjóri hjá netöryggissveitinni CERT-IS
Aukið hlutverk stjórnenda á sviði netöryggis
Sigrún Lilja Sigmarsdóttir, fagstjóri hjá Fjarskiptastofu
Fyrirspurnir og umræður
Fundarstjórn:
Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands
Á fundinum mun Sigríður Rafnar Pétursdóttir, lögfræðingur í innviðaráðuneytinu, fjalla um nýju tilskipunina og innleiðingu hennar og þær kröfur sem hún hefur í för með sér fyrir stofnanir, sveitarfélög og fyrirtæki í fyrrnefndum greinum. Þá mun Sandra Ósk Bender, fagstjóri atvikameðhöndlunar hjá CERT-IS, netöryggissveit íslenskra stjórnvalda, fjalla um það öryggisálag sem öllum stundum er til staðar á ýmsa innviði og nefna dæmi um afleiðingar þess þegar öryggisbrestir verða. Loks mun Sigrún Lilja Sigmarsdóttir, fagstjóri eftirlits með öryggi net- og upplýsingakerfa hjá Fjarskiptastofu, fjalla um hlutverk æðstu stjórnenda í netöryggismálum og mikilvægi markvissrar uppbyggingar stjórnunarkerfis net- og upplýsingaöryggis. Jafnframt verður vikið að þeim áskorunum sem stofnanir, sveitarfélög og fyrirtæki í viðkomandi geirum standa frammi fyrir við að efla öryggi og viðnámsþrótt net- og upplýsingakerfa sinna. Að því loknu taka við fyrirspurnir og umræður.