Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála heldur, í samstarfi við meistaranám í blaða- og fréttamennsku og Rannsóknarsetur í fjölmiðla- og boðskiptafræðum, opinn fund föstudaginn 20. október:

„Elon Musk, goðsagnir um málfrelsið og daður við öfga-hægrið“
Í erindinu mun Christian Christensen fjalla um kaup milljarðamæringsins Elons Musk á samskiptamiðlinum Twitter (nú „X“) og hvernig hann hefur „beitt eignarhaldi sínu til að hampa“ því sem Christian segir spillta og markaðsdrifna mynd af málfrelsi og tjáningarfrelsi. Musk hafi jafnframt grafið undan gagnrýnni fjölmiðlun með því að setja fram kraftmiklar goðsagnir um „woke“ elítur tæknifyrirtækjanna í Kisildalnum og meginstraums fjölmiðla. Christian segir kaup Musks tendra viðvörunarljós um áhrif samþjöppunar á eignarhaldi fjölmiðla.
Christian Christensen er prófessor í blaða- og fréttamennsku við Stokkhólmsháskóla. 

Fundurinn verður haldinn föstudaginn 20. október kl. 12-13 í stofu 201 í Odda, Háskóla Íslands.

Fundarstjóri: Valgerður Anna Jóhannsdóttir, dósent í blaða- og fréttamennsku við HÍ.

Fundurinn fer fram á ensku.

Öll velkomin

Sjá viðburð á facebook.

Image