Er mikið flokkaflakk nýja normið? - Útgáfa Stjórnmála & stjórnsýslu
16:30 til 17:30
Útgáfufundur 1. tbl. 21. árg. tímaritsins Stjórnmála & stjórnsýslu. Hafsteinn Einarsson, nýdoktor við Stjórnmálafræðideild HÍ, kynnir grein hans og félaga hans í Íslensku kosningarannsókninni – þeirra Agnars Freys Helgasonar, Evu H. Önnudóttur, Huldu Þórisdóttur, Jóns Gunnars Ólafssonar og Ólafs Þ. Harðarsonar.
Um helmingur kjósenda kaus annan flokk árið 2024 en þau höfðu gert í kosningunum 2021. Í rannsókninni er kafað ofan í orsakir þessa mikla flokkaflakks og fjallað um hvort það sé e.t.v. nýja normið í íslenskum stjórnmálum.
Fundinum stýrir Eva Marín Hlynsdóttir prófessor, deildarforseti Stjórnmálafræðideildar HÍ og fulltrúi í ritstjórn Stjórnmála & stjórnsýslu.
Fyrirspurnir og umræður verða að loknu erindi þeirra og síðan verður boðið upp á léttar veitingar á annarri hæð Odda.
Tenging við Uglu dagatal HÍ hér.
Öll velkomin.