TVE - Kall eftir greinum: Skilafrestur fyrir innsendar greinar er 1. apríl nk.
Frestur til að skila greinum fyrir júníhefti tímaritsins Stjórnmál & stjórnsýsla 2022 er til 1. apríl.
Lára Hrönn Hlynsdóttir tók um mánaðamótin við sem starfandi forstöðumaður við Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála.
Sex vikna námskeið í stjórnsýslurétti haldið í átjánda sinn 15. febrúar til 24. mars 2022 hjá Stofnun stjórnsýslufræða Háskóla Íslands.
Nýtt námskeið: Loftslagsmál: Verkefni, tækifæri og skyldur sveitarfélaga, ríkisstofnana og fyrirtækja í opinberri eigu. Á námskeiðinu verður fjallað um loftslagsstefnu opinberra aðila og fyrirtækja, leiðir til að mæta þessum kröfum, um eðli loftslagsvandans og tækifæri sem til staðar eru til að gera enn betur á þessu sviði en kveðið er á um í lögum.
Annað tölublað átjánda árgangs ritrýnda tímaritsins TVE ̶ Tímarit um viðskipti og efnahagsmál er komið út. Í tímaritinu er á fjölbreyttan hátt fjallað um viðskipti og efnahagsmál.
Annað tölublað 17. árgangs ritrýnda tímaritsins Stjórnmál og stjórnsýsla er komið út og nálgast má greinarnar á vefslóð tímaritsins.