Hádegisfundur um málefni Grænlands og Norðurslóða, fimmtudaginn 29. janúar, kl. 12:00 í Odda 101 í Háskóla Íslands. Fundurinn er haldinn á ensku.
Félag stjórnmálafræðinga, í samstarfi við Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands, stendur fyrir hádegisfundi fimmtudaginn, 29. janúar kl 12:00-13:00 í Odda 101 í Háskóla Íslands.
Nú þegar athygli heimsins beinist að Grænlandi vegna aukins þrýstings frá Bandaríkjunum hefur spurningin um hver fer með yfirráð á norðurslóðum aldrei verið brýnni. Á fundinum verður rætt hvernig Grænland markar sína eigin stefnu í átt til sjálfstæðis í ljósi aukins utanaðkomandi þrýstings og harðnandi umræðu á alþjóðavettvangi. Sendifulltrúi Grænlands á Íslandi mun ásamt sérfræðingum í málefnum Grænlands og norðurslóða ræða stöðuna í grænlensku samfélagi og hvernig Rússar og Kínverjar eru að móta stöðu sínu til að hafa áhrif á framtíð stjórnarhátta á norðurslóðum.
Í pallborði verða:
Karsten Peter Jensen, Sendifulltrúi Grænlands á Íslandi
Guðbjörg Ríkey Th. Hauksdóttir, doktorsnemi í stjórnmálafræði, Háskóli Íslands
Vilborg Ása Guðjónsdóttir, doktorsnemi í stjórnmálafræði, Háskóli Íslands
Fundarstjóri:
Bogi Ágústsson