Header Paragraph

Hádegisfundur: Sveitastjórnakosningar 2022 - staða, kosningabarátta og málefni 6. maí nk.

Image
Ráðhús Reykjavíkur - mynd tekin vegna Valds- og lýðræðisverkefnisins

Hádegisfundur á vegum Félags stjórnmálafræðinga og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála um sveitastjórnakosningarnar. Fundurinn verður haldinn þann 6.maí kl. 12:00-13:00, í Odda 101 í Háskóla Íslands.

Framundan eru sveitastjórnakosningar og af því tilefni munu þau Eva Marín Hlynsdóttir, prófessor við HÍ og Grétar Þór Eyþórsson, prófessor við HA fara yfir stöðuna í kosningabaráttunni, stöðu sveitastjórnafólks og fjalla um mikilvægi kosninganna og sveitastjórnamála.

Fundurinn er opinn öllum, aðgangur er ókeypis og mun fara fram á íslensku.