Hausthefti Stjórnmála & stjórnsýslu komið út
Út er komið 2. tölublað 20. árgangs tímaritsins Stjórnmál & stjórnsýsla, á vef þess irpa.is / stjornmalogstjornsysla.is.
Að þessu sinni koma út þrjár ritrýndar fræðigreinar:
Representing Iceland on the UN Security Council: Does Nordic membership matter?
Svanhildur Þorvaldsdóttir
The Icelandic presidential election of 2024: strategic voting in a second order election?
Viktor Orri Valgarðsson, Indriði H. Indriðason, Gunnar Helgi Kristinsson, Agnar Freyr Helgason og Hafsteinn Einarsson
Ég er ekki opinber persóna, ég er opinber starfsmaður: Upplifun opinberra starfsmanna af óvæginni umræðu og áreitni og tillögur þeirra að úrbótum
Þóra Bjarnadóttir og Jón Gunnar Ólafsson
Ritstjóri tímaritsins er Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Auk hans sitja í ritstjórn þau Agnar Freyr Helgason dósent, Eva Marín Hlynsdóttir prófessor og Eva Heiða Önnudóttir prófessor, öll við Stjórnmálafræðideild HÍ, auk Gústafs Adolfs Skúlasonar, forstöðumanns Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við HÍ, sem er útgefandi tímaritsins.
Haldinn er opinn fundur í tilefni útgáfunnar kl. 16:30 á útgáfudag, 17. desember, í Odda 101 í Háskóla Íslands. Þar kynnir Viktor Orri Valgarðsson grein þeirra Indriða, Gunnars Helga, Agnars Freys og Hafsteins um íslensku forsetakosningarnar 2024. Í kjölfar fundarins er boðið upp á léttar veitingar í kaffistofu kennara í Odda og eru allir fundargestir velkomnir.