Félag stjórnmálafræðinga hélt, í samstarfi við Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála, dag stjórnmálafræðinnar mánudaginn 16. júní í stofu 101 í Odda. Þema fundarins var staða lýðræðisins á Vesturlöndum. Erindi fluttu þeir Viktor Orri Valgarðsson nýdoktor og Ólafur Þ. Harðarson prófessor emeritus, báðir við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Í pallborði voru þær Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir prófessor, Valgerður Anna Jóhannsdóttir dósent og Eva H. Önnudóttir prófessor, allar við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands sem og Svanhildur Þorvaldsdóttir dósent og formaður Félags stjórnmálafræðinga sem stýrði fundinum. Í lok fundar voru svo að vanda veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi lokaritgerðir í stjórnmálafræði. Upptöku af fundinum er að finna hér á síðu stofnunarinnar.
