Hvaða reglur gilda um starfslok opinberra starfsmanna?
Hvaða reglur gilda um starfslok opinberra starfsmanna?
Vekjum athygli á að námskeiðið fer einungis fram í fjarnámi. Fjarnámið er sent út í beinu streymi og einnig verður upptaka af námskeiðinu aðgengileg fyrir fjarnema eftir að því lýkur.
- Miðvikudagurinn 2. mars 2022, kl. 9.00-12.30
- Þátttökugjald: kr. 19.500-
Umsjónarmaður og fyrirlesari
- Kjartan Bjarni Björgvinsson, héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur.
Markhópur
Stjórnendur og starfsmenn hjá stofnunum ríkisins og sveitarfélaga sem koma að undirbúningi og ákvörðun um ráðningu og starfslok í opinbert starf, sem að öðrum ákvörðunum í starfsmannamálum.
Markmið námskeiðsins
Að þátttakendur öðlist haldgóða þekkingu á því hvernig standa ber að öllum helstu ákvörðunum í málefnum opinberra starfsmanna samkvæmt lögum nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og stjórnsýslulögum nr. 37/1993. Fjallað verður um hvaða lagalegu mörk stjórnunarvaldi yfirmanna eru sett og þær reglur sem gilda um starfslok opinberra starfsmanna. Umfjöllunin verður studd dæmum um framkvæmd laganna og þá m.a. vísað til dóma Hæstaréttar og álita umboðsmanns Alþingis.
Námskeiðið tekur m.a. á eftirfarandi álitaefnum
Svigrúm stjórnenda til að gera breytingar á verkefnum opinberra starfsmanna, skyldur starfsmanna hjá hinu opinbera, hvernig á að taka á málum þegar starfsmaður sinnir starfi sínu á ófullnægjandi máta og brottvikning starfsmanns. Fjallað er um lagalegar afleiðingar mistaka við að taka á þessum málum. Þátttakendur fá yfirlit yfir helstu álitamál i tengslum við starfsmannastjórn hjá hinu opinbera og möppu með helstu dómum og álitum umboðsmanns sem vitnað er til í námskeiðinu.
Um fyrirlesara
Kjartan Bjarni Björgvinsson er héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur. Kjartan var formaður úttektarnefndar ÍSÍ og einn af höfundum skýrslu um úttekt á viðbrögðum og málsmeðferð KSÍ vegna frásagna um kynferðisofbeldi sem kynnt var í desember sl. Kjartan er með meistarapróf í lögum frá London School of Economics and Political Science og hefur meðal annars starfað sem settur umboðsmaður Alþingis, formaður rannsóknarnefndar Alþingis og dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík.