Hvenær
30. september 2025
09:00 til 12:30
Hvar
Rafrænt
Nánar

Smelltu hér til að skrá þig á námskeiðið

Vekjum athygli á að námskeiðið fer einungis fram í fjarnámi. Fjarnámið er sent út í beinu streymi og einnig verður upptaka af námskeiðinu aðgengileg fyrir fjarnema eftir að því lýkur.

- Þriðjudaginn 30. september 2025, kl. 9.00-12.30

- Þátttökugjald: kr. 26.500-

Umsjónarmaður og fyrirlesari:
Kjartan Bjarni Björgvinsson, dómari við Landsrétt

Efni námskeiðs:
Í námskeiðinu verður fjallað um hvers konar hagsmunatengsl geta gert starfsfólk ríkis og sveitarfélaga vanhæft til að koma að meðferð mála í stjórnsýslunni og taka ákvarðanir í þeim. Farið verður yfir tilgang reglanna, um hvaða starfsfólk það gildir og  hvernig á að bera sig að þegar upp koma álitamál um hæfi einstakra starfsmanna. 

Einnig verður leitast við að svara spurningum á borð við í hvaða tilvikum starfsfólk verði helst vanhæft og hvort til dæmis vinátta eða kunningsskapur við aðila máls getur gert starfsmann vanhæfan til að koma að því. Þá verður gerð grein fyrir þeim mun sem er á reglum um hæfi starfsfólks ríkisins og sveitarfélaga og fjallað sérstaklega um afleiðingar þess þegar vanhæfur starfsmaður kemur að máli. Umfjöllunin verður að miklu leyti studd dæmum úr dómaframkvæmd og álitum umboðsmanns Alþingis. 

Markhópur: 
Námskeiðið er ætlað starfsfólki hjá ríki og sveitarfélögum, lögmönnum og öðrum sérfræðingum sem eiga í samskiptum við stofnanir ríkis og sveitarfélaga. 

Um fyrirlesara:
Kjartan Bjarni Björgvinsson er dómari við Landsrétt. Hann hefur meðal annars starfað sem settur umboðsmaður Alþingis, formaður rannsóknarnefndar Alþingis og dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík.

Deila