Smelltu hér til að skrá þig á námskeiðið
Vekjum athygli á að námskeiðið fer einungis fram í fjarnámi. Fjarnámið er sent út í beinu streymi og einnig verður upptaka af námskeiðinu aðgengileg eftir að því lýkur.
Þriðjudagurinn 24. nóvember 2026, kl. 9.00-12:00
Þátttökugjald: kr. 27.800-
Umsjónarmaður og fyrirlesari:
Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir, sérfræðingur í lýðræðismálum hjá Reykjavíkurborg sl. 7 ár og stundakennari við Stjórnmálafræðideild HÍ.
Markhópur:
Kjörnir fulltrúar, stjórnendur og starfsfólk sveitarfélaga
Námskeiðslýsing:
Virkt og markvisst samráð við íbúa og hagaðila um ákvarðanatöku er mikilvægt í ákvarðanatöku sveitarfélaga. Vandað samráð stuðlar að auknu trausti, betri ákvarðanatöku og meiri sátt um stefnu og framkvæmdir sveitarfélaga. Hvernig staðið er að slíku samráði skiptir lykilmáli – það þarf að vera vel skipulagt, með skýran tilgang og faglega unnið.
Á þessu námskeiði er farið yfir hlutverk samráðs í nútíma stjórnsýslu sveitarfélaga, helstu aðferðir og verkfæri, ásamt því hvernig hægt er að tryggja að samráð verði raunverulega gagnlegt fyrir bæði sveitarfélagið og þátttakendur. Einnig verður fjallað um ólíka nálgun kjörinna fulltrúa og starfsfólks stjórnsýslu á samráð við almenning.
Þátttakendur fá innsýn í hvernig velja má réttar samráðsaðferðir fyrir ólík verkefni, hvernig ná má til fjölbreyttra hópa og hvernig vinna má úr þeirri þekkingu og sjónarmiðum sem fram koma.
Um fyrirlesara:
Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir hefur starfað sem sérfræðingur í lýðræðismálum hjá Reykjavíkurborg sl. 7 ár en einnig sem stundakennari við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Árin 2008-2011 starfaði hún við Háskóla Íslands við rannsókn á íbúalýðræði 22 stærstu sveitarfélaga á Íslandi og var einn ritstjóra og höfunda ritsins Leiðsögn um lýðræði í sveitarfélögum sem gefið var út í samstarfi Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála og Sambands íslenskra sveitarfélaga árið 2012. Sigurlaug hefur BA og MA gráðu frá stjórnmálafræðideild H.Í. auk diplómu í opinberri stjórnsýslu og kennsluréttindi.