Header Paragraph
Samið við Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn
Samið hefur verið við Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn um hýsingu á og faglega þjónustu við nokkur ritrýnd tímarit sem gefin eru út í opnum aðgangi og tengjast Háskóla Íslands. Þeirra á meðal eru tímaritið Stjórnmál & stjórnsýslu sem stofnunin gefur út og TVE-Tímarit um viðskipti og efnahagsmál, en stofnunin hefur jafnframt umsjón með útgáfu þess.
Samningarnir taka gildi 1. mars nk. og lýsir Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála mikilli ánægju með þennan áfanga. Hjá Landsbókasafni hafa þessi tímarit aðgang að nauðsynlegri þjónustu upplýsingafræðinga og kerfisstjóra og hefur stofnunin góðar væntingar um ánægjulegt samstarf á komandi árum.