Sex vikna námskeið í stjórnsýslurétti
Sex vikna námskeið í stjórnsýslurétti haldið í átjánda sinn 15. febrúar til 24. mars næstkomandi.
Á námskeiðinu verður fjallað um stjórnsýslulögin og stjórnsýslurétt fyrir það starfsfólk ríkis (ráðuneyta og ríkisstofnana) og sveitarfélaga sem kemur að meðferð mála og undirbúningi ákvarðana í stjórnsýslunni.
Námskeiðið er eitt vinsælasta námskeið Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála frá upphafi. Þótt námskeiðið sé fyrst og fremst ætlað ólöglærðum getur það einnig nýst lögfræðingum til upprifjunar.
- Skráning og nánari upplýsingar
Umsagnir þátttakenda
„Sem starfsmaður á stjórnsýslustofnun get ég fullyrt að á hverjum degi námskeiðsins voru teknir fyrir hlutir sem nýttust mér með beinum hætti við vinnu. Í kjölfar þessa námskeið er því ljóst að ég mun geta tekist á við mín störf af meira öryggi."
„Mjög gott námskeið, ætti næstum að vera skyldufag fyrir starfsmenn í íslenskri stjórnsýslu.“