Valds- og lýðræðisrannsóknin 2014-2017

Valds- og lýðræðisrannsókn Félagsvísindasviðs var rannsóknarverkefni til fjögurra ára (2014-2017) sem var meðal annars styrkt af Aldarafmælissjóði Háskóla Íslands.

Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í Stjórnmálafræðideild, stýrði rannsókninni.

Um 30 fræðimenn úr ólíkum deildum Félagsvísindasviðs tóku þátt í henni. Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála hélt utan um framkvæmd og skipulag. 

Í rannsókninni var athyglinni beint að megingerendum í valds- og lýðræðiskerfum íslensks samfélags svo sem að:

  • löggjafanum
  • framkvæmdavaldinu
  • stjórnsýslunni
  • stjórnmálaflokkum
  • hagsmunasamtökum
  • fjölmiðlum
  • almenningi

Nánar um niðurstöður rannsóknarinnar hér